Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 493/2018

Nr. 493/2018 17. maí 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

1. gr.

Við 20. gr. bætast nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/480 frá 1. apríl 2016 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 1213/2010. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 19. apríl 2018, bls. 279-282.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1440 frá 8. ágúst 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 19. apríl 2018, bls. 299-303.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 2. mgr. 32. gr. og 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 17. maí 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 22. maí 2018