Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1329/2021

Nr. 1329/2021 4. nóvember 2021

AUGLÝSING
um (1.) breytingu á gjaldskrá fyrir eftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvælastofnunar, nr. 220/2018.

1. gr.

2. mgr. 8. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Fyrir aðra vinnu vegna rekstrarleyfa fiskeldis, meðal annars endurnýjun rekstrarleyfis, framsal, o.fl., skal greitt tímagjald skv. 9. gr. Sama gildir um vinnu vegna skráningar fiskeldisstöðvar, úttekt vegna skráningar og vinnu sem tengist breytingu á skráningum.

 

2. gr.

Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskrá er sett með heimild í 14. og 14. gr. a. laga um fiskeldi nr. 71/2008 og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. nóvember 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 26. nóvember 2021