Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 860/2019

Nr. 860/2019 13. september 2019

AUGLÝSING
um staðfestingu á viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.

Samkvæmt 6. mgr. 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 60/2007, hefur umhverfis- og auðlinda­ráðherra staðfest viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs vegna Kreppu­tungu og Kverkárrana.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við lög nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð og hefur stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs gert tillögu til ráðherra um staðfestingu.

Stjórnunar- og verndaráætlunin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 13. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 1. október 2019