1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 50. gr. reglnanna:
- 1. málsliður 3. mgr. orðast svo: Uni stúdent ekki endanlegri ákvörðun deildarforseta um rétt hans eða skyldu á hann kost á að skjóta máli sínu til háskólaráðs.
- Á eftir 1. málslið 3. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Áður en háskólaráð tekur ákvörðun leitar ráðið álits kærunefndar í málefnum nemenda við Háskóla Íslands.
- Á eftir orðinu „Deildarforseti“ í upphafi núverandi 3. málsliðar 3. mgr. bætist við orðið: háskólaráð.
- Í stað orðsins „kærunefndina“ í 1. málslið 4. mgr. kemur: háskólaráð.
- Á eftir 1. málslið 4. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Áður en háskólaráð tekur ákvörðun leitar ráðið álits kærunefndar.
- Í stað orðsins „kærunefndar“ í núverandi 3. málslið 4. mgr. og 1. málslið 5. mgr. kemur: háskólaráðs.
- Í stað orðsins „kærunefndin“ í 3. málslið 5. mgr. kemur: háskólaráð.
- Í stað orðsins „hana“ í lok 3. málsliðar 5. mgr. kemur: ráðið.
2. gr.
4. mgr. 100. gr. reglnanna breytist og orðast svo:
Til að standast BS-próf í lyfjafræði verður nemandi að hljóta minnst einkunnina 5,0 í öllum námskeiðum hverju fyrir sig, auk allra námskeiðshluta í einstökum námskeiðum. Til að standast MS-próf í lyfjafræði, lyfjavísindum eða klínískri lyfjafræði verður nemandi að hljóta minnst einkunnina 6,0 í öllum námskeiðum hverju fyrir sig, auk allra námskeiðshluta í einstökum námskeiðum. Deildin ákvarðar vægi hvers námskeiðshluta í samráði við kennara og birtir tilkynningu um það efni í upphafi kennslumisseris.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 6. nóvember 2020.
Jón Atli Benediktsson.
|