Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1599/2023

Nr. 1599/2023 22. desember 2023

AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2024.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts sam­kvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2024 verður 16,55% af tekjuskattsstofni að 5.353.634 kr., 23,05% af tekjuskattsstofni frá 5.353.635 kr. að 15.030.014 kr. og 31,35% af tekjuskattsstofni frá 15.030.015 kr. Meðalútsvar á árinu 2024 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,93%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2024 verður því 31,48% af tekju­skatts­stofni að 5.353.634 kr., eða að 446.136 kr. að meðaltali á mánuði, 37,98% af tekju­skatts­stofni frá 5.353.635 kr. að 15.030.014 kr., eða frá 446.137 kr. að 1.252.501 kr. að meðal­tali á mánuði og 46,28% af tekjuskattsstofni frá 15.030.015 kr., eða frá 1.252.502 kr. að meðaltali á mánuði.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2024 vera 779.112 kr., eða 64.926 kr. að meðaltali á mánuði.

Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, skal skattfrelsismark erfðafjárskatts í skattstofni dánarbús á árinu 2024 vera 6.203.409 kr.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2023.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2023