Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 570/2015

Nr. 570/2015 29. júní 2015

GJALDSKRÁ
Orkuveitu Reykjavíkur, heitt vatn.

1. gr.

Almennt.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir heitt vatn á veitusvæðum Orkuveitu Reykjavíkur. Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af heitu vatni, 2% af smásöluverði. Heimilt er að miða innheimtu skattsins við áætlaða sölu. Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, 11% af vatni til húshitunar og laugarvatns en 24% til annarra nota.

Á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli.

2. gr.

Almennir taxtar, mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A Einingaverð Sala í þéttbýli 122,41 2,45 138,59 kr./m³
J1A Einingaverð Sala í dreifbýli 161,55 3,23 182,91 kr./m³

Taxtarnir gilda fyrir alla húshitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Heitt vatn er selt samkvæmt rúmmetramælingu.

Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu heits vatns.

Orkuveitu Reykjavíkur er ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhendingarstað enda geri Orkuveita Reykjavíkur þær ráðstafanir sem má ætlast til af henni til að halda hitastiginu í eðlilegu horfi.

Sækja skal skriflega um alla taxta aðra en ofangreinda taxta.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

3. gr.

Almennir taxtar, fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 40,36 0,81 45,70 kr./dag
H1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 84,32 1,69 95,47 kr./dag
H1C Fast verð C: 65 mm og stærri 170,89 3,42 193,48 kr./dag
             
Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 45,69 0,91 51,73 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 95,25 1,91 107,85 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 192,74 3,85 218,21 kr./dag

Fast verð er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er háð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

4. gr.

Gróðurhús og sundlaugar.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H3 Einingaverð Gróðurhús 61,17 1,22 69,25 kr./m³
H4 Einingaverð Sundlaugar 61,17 1,22 69,25 kr./m³

Skýringar:

Taxtar H3 og H4 eru ekki forgangsvatn. Taxtarnir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Orkuveitu Reykjavíkur.

H4 taxtinn gildir fyrir sundlaugar, set- og vaðlaugar. Heimilt er að tengja baðvatn þessum taxta ef sundlaugin er aðalþáttur í starfsemi kaupanda.

H3 taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni.

5. gr.

Snjóbræðsla, fiskeldi, íþróttavellir utanhúss og iðnaðarvatn í framleiðsluferla.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
V1 Einingaverð Snjóbræðsla 122,41 2,45 154,83 kr./m³
V2 Einingaverð Fiskeldi 61,17 1,22 77,36 kr./m³
V3 Einingaverð Íþróttavellir, utanhúss. 91,90 1,84 116,24 kr./m³
V4 Einingaverð Iðnaðarvatn í framleiðsluferla 61,17 1,22 77,36 kr./m³

Skýringar:

Taxtar V1 til V4 eru ekki forgangsvatn. Þeir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Orkuveitu Reykjavíkur.

V1 taxtinn gildir fyrir sértengt snjóbræðslukerfi.

V2 taxtinn gildir fyrir fiskeldisfyrirtæki í framleiðslu.

V3 taxtinn gildir fyrir upphitaða íþróttavelli utanhúss.

V4 taxtinn gildir fyrir atvinnustarfsemi sem nýtir heitt vatn beint í framleiðsluferla. Taxtinn gildir í engum tilvikum fyrir húshitun eða kranavatn.

5.1

Snjóbræðsla.

S1. Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   512,75 10,26 648,53 kr./dag
SR1 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en
-5°C
61,17 1,22 77,36 kr./m³
SR1 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en
-5°C
183,59 3,67 232,20 kr./m³

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Orku­veita Reykjavíkur leggur til.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Orku­veita Reykjavíkur leggur til.

S2. Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn með flatargjaldi (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   512,75 10,26 648,53 kr./dag
SR2 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en
-5°C
61,17 1,22 77,36 kr./m³
SR2 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en
-5°C
183,59 3,67 232,20 kr./m³
SR2 Daggjald Fyrir hvern m² snjóbræðsluflatar 0,14 0,003 0,17 kr./m²

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Orku­veita Reykjavíkur leggur til.

Taxtinn miðast við að tvöfalt dreifikerfi sé til staðar hjá kaupanda. Daggjaldið er á hvern m² snjóbræðsluflatar.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Orkuveita Reykjavíkur leggur til.

6. gr.

Frístundahús – hemlataxtar.

Veitusvæði Taxti   Kr. 2% skattur Með
11% vsk
Grunnur
Dreifbýli Grunnverð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 298,53 5,97 338,00 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra
umfr. 3 l
59,71 1,19 67,60 kr./dag

Skýringar:

Gildir fyrir frístundahús á svæðum Austurveitu, Grímsnesveitu, Hlíðaveitu, Ölfusveitu, Skorradals­veitu, Munaðarnesveitu og Norðurárdalsveitu.

Hitaveituvatn til frístundahúsa er selt um hemil til takmörkunar á rennsli. Mínútulítri táknar það rennsli sem gefur 1 lítra af vatni á 1 mínútu.

Innifalið í grunnverði eru 3 mínútulítrar, sem er minnsta magn sem afhent er til sumarhúsa.

Hægt er að sækja um aukið vatnsmagn hvenær sem er en umsókn um minnkun er aðeins framkvæmd mánuðina apríl og maí ár hvert.

Hugsanlegt er að svæðisbundið sé ekki nægt vatn til að verða við óskum um að kaupa aukið vatnsmagn.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

7. gr.

Verðskrá fyrir Rangárveitu dreifbýli.

Samkvæmt reglugerð nr. 10/2012 um breytingu á reglugerð nr. 297/2006, um Orkuveitu Reykjavíkur með síðari breytingum, nær veitusvæði fyrirtækisins til Hellu og Hvolsvallar og nærliggjandi sveita, eins og það veitusvæði er skilgreint í samningi frá 25. janúar 2005 milli Orkuveitu Reykjavíkur, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps. Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðar um Orkuveitu Reykjavíkur segir einnig að í þeim tilvikum þar sem á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli skal skilgreining á milli þéttbýlis og dreifbýlis fylgja því hvernig viðkomandi sveitarfélag skilgreinir þéttbýli á aðal­skipulagi. Ákvæði 7. gr. gjaldskrár þessarar gilda eingöngu fyrir dreifbýli á því svæði sem framangreindur samningur tekur til. Önnur ákvæði gjaldskrárinnar, s.s. ákvæði 8. gr. um heim­lagnir gilda einnig á því svæði eftir því sem við á.

7.1

Mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með
11% vsk
Grunnur
J1A Einingaverð Sala í dreifbýli 161,55 3,23 182,91 kr./m³

7.2

Fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með
11% vsk
Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 45,69 0,91 51,73 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 95,25 1,91 107,85 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 192,74 3,85 218,21 kr./dag

7.3

Íbúðarhús – blandaður taxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með
11% vsk
Grunnur
HR5 Grunnverð Grunndagverð 52,19 1,04 59,09 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra 59,57 1,19 67,44 kr./dag
Einingaverð Neysluvatn um rennslismæli 155,51 3,11 176,07 kr./m³

7.4

Frístundahús – hemlataxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með
11% vsk
Grunnur
HR4 Grunnverð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 298,53 5,97 338,00 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra
umfram 3 l
59,71 1,19 67,60 kr./dag

8. gr.

Heimlagnir – almennt.

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verð gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðar­mörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verð­skrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða inn­heimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

8.1

Heitt vatn – heimæðagjöld.

Neðangreint verð gildir í þéttbýli þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heim­æðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatns­magni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heim­æða­gjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H1H 20 mm 305.013 338.564 378.216
H1H 25 mm 476.583 529.007 590.963
H1H 32 mm 780.833 866.725 968.233
H1H 40 mm 1.220.051 1.354.257 1.512.863
H1H 50 mm 1.906.329 2.116.025 2.363.848

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.2

Heitt vatn – bráðabirgðatengingar.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H2H 20 mm 91.505 101.571 113.466

Skýringar:

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað.

8.3

Heimæðagjöld í dreifbýli (lögbýli og heilsárshús).

Neðangreind verð gilda þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 2% yfir­lengdar­gjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatns­magni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heim­æða­gjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð
m.v. stál
Málstærð
m.v. PEX
Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H3H 20 mm 25 mm 396.518 440.135 491.682
H3H 25 mm 32 mm 619.557 687.708 768.251
H3H 32 mm   1.015.082 1.126.741 1.258.702

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 32 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.4

Heimæðagjöld fyrir frístundahús (í samræmi við byggingarleyfi).

Neðangreind verð gilda í frístundahúsabyggðum þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 100 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Málstærð Skýring Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
15 mm PEX Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð 574.833 638.065 712.793
15 mm PEX Heimæð lögð samtímis og í sama skurði og kaldavatnsæð OR 404.729 449.249 501.864

Skýringar:

Heitavatnsheimæðar fyrir frístundahús eru 15 mm. Ósk um stærri heimæð fellur undir mat Orkuveitunnar á styrk dreifikerfis og verði ósk samþykkt greiðir umsækjandi allan viðbótar­kostnað sem fylgir stærri heimæð og þ.m.t. styrkingu á aðveitu.

9. gr.

Þjónustugjöld.

Texti Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
Seðilgjald 193   239
Tilkynningar- og greiðslugjald 92   114
Aukaálestur 1.894 2.102 2.349
Skipting orkureiknings 2.614 2.902 3.241
Innheimtuviðvörun 1 950 1.055 1.178
Lokunargjald 2.702 2.999 3.350
Lokunargjald v/sumarhúss 13.753 15.266 17.054
Endurkoma vegna tengingar sumarhúss 2 17.191 19.082 21.317
Útkall v/búnaðar notanda í sumarhúsi 3 13.753 15.266 17.054
Gjald fyrir innheimtuaðgerð þar sem nauðsynlegt er að grafa niður á heimæð 4 305.013 338.564 378.216

Skýringar:

1 20 dögum eftir gjalddaga.
2 Gjald fyrir endurkomu þegar umsækjandi hefur ekki uppfyllt sín skilyrði við áhleypingu.
3 Gjald fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði hús­eig­anda.
   Sé leitað eftir þjónustu utan dagvinnutíma reiknast 55% álag.
4 25% álag reiknast á innheimtuaðgerð utan þéttbýlis.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 139/2001 um stofnun sam­eignar­fyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breyt­ingum, sbr. reglugerð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur nr. 297/2006, með síðari breyt­ingum, til að öðlast gildi 1. júlí 2015 og birtast til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafn­framt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1165/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. júní 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Þórður Reynisson.

Helga Barðadóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. júní 2015