Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1522/2023

Nr. 1522/2023 19. desember 2023

REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2024.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2024 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2024.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2024 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 129 pr. lítra
Egg 630 pr. kg
Kartöflur 174 pr. kg
Rófur 205 pr. kg
Gulrætur 559 pr. kg
Lambakjöt 727 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 223 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 143 pr. kg
Ungnautakjöt 763 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 462 pr. kg
Folaldakjöt 363 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 132 pr. kg
Grísakjöt 571 pr. kg
Annað svínakjöt 291 pr. kg
Kjúklingar 524 pr. kg
Annað fuglakjöt 859 pr. kg
Lax og silungur 905 pr. kg
Annar fiskur 418 pr. kg

 

Reykjavík, 19. desember 2023.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023