Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 789/2022

Nr. 789/2022 29. júní 2022

REGLUR
um beitingu val- og heimildarákvæða samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

 

2. gr.

Áhættuvog á fjárhæðir virkra eignarhluta.

Áhættuvog skv. 3. mgr. 89. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. 1. gr. c laga nr. 161/2002, skal vera 1250% á þá fjárhæð sem hærri er samkvæmt eftirfarandi tveimur stafliðum:

  1. þá fjárhæð virkra eignarhluta sem fer fram yfir 15% af hæfu fjármagni eða
  2. heildarfjárhæð samtölu virkra eignarhluta sem fer fram yfir 60% af hæfu fjármagni.

3. gr.

Takmarkanir á stórum áhættuskuldbindingum.

Fjárhæðarmörk áhættuskuldbindinga vegna viðskiptamanns sem er fjármálafyrirtæki eða vegna hóps tengdra viðskiptamanna þar sem einn, eða fleiri, er fjármálafyrirtæki skv. 1. mgr. 395. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. 1. gr. c laga nr. 161/2002, skulu vera 10 milljarðar króna í stað 150 milljóna evra.

 

4. gr.

Frádráttarliðir vegna stórra áhættuskuldbindinga.

Við útreikning fjárhæðar áhættuskuldbindinga skv. 1. mgr. 395. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. 1. gr. c laga nr. 161/2002, er heimilt að undanskilja eftirfarandi liði:

  1. Sértryggð skuldabréf sem uppfylla skilyrði laga um sértryggð skuldabréf, nr. 11/2008, sbr. a-lið 2. mgr. 400. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
  2. Kröfur á héraðs- og sveitastjórnir innan Evrópska efnahagssvæðisins, aðrar en samkvæmt e-lið 1. mgr. 400. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, má undanskilja að 80% hluta þegar um er að ræða kröfur sem falla undir 20% áhættuvægi skv. 2. kafla II. bálks þriðja hluta reglugerðarinnar. Sama á við um ábyrgðir og aðrar áhættuskuldbindingar sömu aðila, sbr. b-lið 2. mgr. 400. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.

 

5. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 4. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi 1. júlí 2022.

 

Seðlabanka Íslands, 29. júní 2022.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Elmar Ásbjörnsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. júní 2022