Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 812/2020

Nr. 812/2020 20. ágúst 2020

AUGLÝSING
um (1.) breytingu á auglýsingu nr. 792/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Við 5. gr. auglýsingarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Nánar er kveðið á um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar í sérstakri auglýsingu þar um. Ákvæði þeirrar auglýsingar ganga framar þessari auglýsingu ef þau eru ósamrýmanleg.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 20. ágúst 2020.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. ágúst 2020