Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1025/2017

Nr. 1025/2017 10. nóvember 2017

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, stað­fest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu náms­brauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntöku­skilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef ráðuneytisins:
https://www.stjornarradid.is/default.aspx?PageID=5ca2fcac-d742-11e6-9409-005056bc4d74.

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Almenn námsbraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 1 (17-282-1-1)
Framhaldsskólabraut - línur, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (17-351-2-3)
Grunnnámsbraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (17-283-2-3)
Hársnyrtibraut, hársnyrtir, hæfniþrep 3 (17-203-3-8)
Heilbrigðisritari, heilbrigðisritari, hæfniþrep 2 (17-137-2-5)
Hestabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-231-3-6)
Íþrótta- og heilbrigðisbraut, stúdent, hæfniþrep 3  (17-307-3-6)
Íþrótta- og lýðheilsubraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-352-3-6)
Keramikbraut, viðbótarnám við framhaldsskóla, hæfniþrep 4 (17-292-4-11)
Kjörsviðsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-281-3-6)
Listnámsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-343-3-7)
Náttúruvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-207-3-6)
Nýsköpunarbraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (17-352-2-3)
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (17-354-1-12)
Teiknibraut, viðbótarnám við framhaldsskóla, hæfniþrep 4 (17-291-4-11)
Textílbraut, viðbótarnám við framhaldsskóla, hæfniþrep 4 (17-294-4-11)
Tölvufræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-341-3-7)

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 10. nóvember 2017.

Kristján Þór Júlíusson.

Ásta Magnúsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2017