Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 794/2013

Nr. 794/2013 14. ágúst 2013
AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003.

Samkvæmt 29. gr. orkulaga nr. 58 29. apríl 1967, með síðari breytingum, hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003, er öðlist gildi 1. september 2013:

4. gr. breytist og orðist svo:

Hver lítri á mínútu kostar kr. 44.126 á ári, án fastagjalds og virðisaukaskatts.

Notendur sem kaupa 4 l/mín., eða minna greiða einnig fastagjald kr. 19.814 á ári auk virðisaukaskatts.

5. gr. breytist og orðist svo:

Fyrirtæki sem samið hafa um kaup á heitu vatni samkvæmt rennslismæli greiða kr. 143,24 fyrir rúmmetra vatns auk virðisaukaskatts, en greiða þá að lágmarki samkvæmt samningi um fastan lítrafjölda.

6. gr. breytist og orðist svo:

Stofngjöld fyrir Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs eru sem hér segir:

a)

fyrir lögbýli með búrekstur

kr.

2.157.760

b)

fyrir íbúðarhús

kr.

571.155

c)

fyrir sumarhús

kr.

402.598

d)

fyrir aðra aðila

kr.

143.169 á mínútulítra.


Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. ágúst 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. ágúst 2013