Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1358/2020

Nr. 1358/2020 9. desember 2020

GJALDSKRÁ
HS Veitna hf. fyrir heitt vatn.

I. KAFLI

1. gr.

HS Veitur hf. selja afnot af heitu vatn úr veitukerfum þeim, sem gerð hafa verið og verða gerð, eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

HS Veitur hf. láta hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til fullrar hitunar, enda séu ofnar hússins nægilega stórir, að mati HS Veitna hf.

Vatnsrennsli að húsinu verður mælt með þar til gerðum magnmælum eða af sérstökum ástæðum, að mati HS Veitna hf., takmarkað með magnhemli.

 

II. KAFLI

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi á Suðurnesjum greiða samkvæmt magnmæli:

 

  án vsk m. 11% vsk m. 24% vsk  
Til húshitunar (80°C frá dælustöð) 135,81 150,7491    kr./m³
Til húshitunar (90°C frá dælustöð) 149,42 165,8562    kr./m³
Til annarra nota 135,81   168,4044  kr./m³
Til iðnaðar* 115,44   143,1456  kr./m³

* Sem verulegur hluti framleiðslukostnaðar.

 

Ef ekki er talið hægt að innheimta eftir magnmæli skal greiða samkvæmt magnhemli:

 

  án vsk m. 11% vsk  
Húshitun l/m á ári (80°C frá dælustöð) 48.385,00 53.707,00  kr.
Húshitun l/m á dag (80°C frá dælustöð) 132,56 147,14  kr.

 

Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi í Vestmannaeyjum greiða samkvæmt magnmæli:

 

Til húshitunar, íbúðir án vsk m. 11% vsk  
VM1 m³ 328,52 348,40  kr./m³
VM2 m³ 82,02 86,96  kr./m³
VM2 kWh 5,50 5,83  kr./kWh

 

Orkustofnun hefur umsjón með niðurgreiðslum, sjá nánar á vef Orkustofnunar: www.os.is.

 

Til húshitunar, annað en íbúðir án vsk m. 11% vsk  
VM3 m³ 308,89 342,87  kr./m³
VM4 m³ 76,76 85,20  kr./kWh
VM4 kWh 5,13 5,69  kr./kWh

 

4. gr.

Fastagjald fer eftir stærð mælis/hemils og skal greitt jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og er fyrir hverja veitu sem hér segir á Suðurnesjum:

 

  án vsk m. 11% vsk m. 24% vsk  
Mælir eða hemill allt að 20 mm 9.054,00 10.050,00 11.227,00  kr./ár
Mælir eða hemill allt að 20 mm 24,81 27,53 30,76  kr./dag
Mælir allt að 25-50 mm 18.140,00 20.135,00 22.494,00  kr./ár
Mælir allt að 25-50 mm 49,70 55,16 61,63  kr./dag
Mælir 65 mm og stærri 36.247,00 40.234,17 44.946,00  kr./ár
Mælir 65 mm og stærri 99,31 110,23 123,14  kr./dag

 

Fastagjald fer eftir stærð mælis og skal greitt jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og er fyrir hverja veitu sem hér segir í Vestmannaeyjum:

 

Flokkur og stærð mæla án vsk m. 11% vsk  
MV1 Fyrir mæla 20 mm og minni 26.728,00 29.668,00  kr./ár
MV1 Fyrir mæla 20 mm og minni 73,23 81,28  kr./dag
MV2 Fyrir mæla 25 – 50 mm 53.255,00 59.113,00  kr./ár
MV2 Fyrir mæla 25 – 50 mm 145,90 161,95  kr./dag
MV3 Fyrir mæla 65 mm og stærri 106.754,00 118.497,00  kr./ár
MV3 Fyrir mæla 65 mm og stærri 292,48 324,65  kr./dag

 

5. gr.

Hitaveitugjöld skv. 3. og 4. gr. má krefja mánaðarlega. Gjalddagi hitaveitugjalda er við fram­vísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Sé reikningurinn ekki greiddur við fyrstu sýningu, ber gjaldanda að greiða hann, þar sem HS Veitur hf. ákveða. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 15 daga frá gjalddaga.

 

6. gr.

Heimæðargjald skal greitt fyrir hverja heimæð er tengir hús við veitukerfi HS Veitna hf. Heimæðargjald skal greitt þegar lagningu heimæðar er lokið.

Heimæðargjald skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

 

Rúmmál húss utanmál m³ án vsk m. 11% vsk  
Allt að 400 m³ 211.599,00 234.874,89  kr.
Yfir 400 – 2.000 m³ 172,00 190,92  kr./m³
2.000 m³ 487.806,00 541.464,66  kr.
Yfir 2.000 – 6.000 m³ 141,00 156,51  kr./m³
6.000 m³ 1.055.298,00 1.171.380,78  kr.
Yfir 6.000 – 10.000 m³ 126,00 139,86  kr./m³
10.000 m³ 1.558.180,00 1.729.579,80  kr.
Yfir 10.000 m³ 110,00 122,10  kr./m³
Bráðabirgðatenging, t.d. vinnuskúrar 34.674,00 38.488,14  kr.

 

Nú eru fleiri en eitt hitunarkerfi í húsinu með sérstökum hemlum eða mælum frá HS Veitum hf. og skal þá greiða fyrir hverja grind:

 

  án vsk m. 11% vsk  
Aukagrind 26.275,00 29.165,25  kr.

 

III. KAFLI

7. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað húseiganda.

 

8. gr.

HS Veitur hf. hafa rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Heimilt er að loka vatnsrennsli að húsi, sem hitaveitugjöld eru vangreidd af.

Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með minnst 5 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá, sem vanskilum veldur hverju sinni.

  án vsk m. 24% vsk  
Opnunargjald 7.086,00 8.786,64  kr.

 

9. gr.

Eftirlitsmanni HS Veitna hf. skal hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hemlum, mælum, hita­gjöfum og vatnsæðum sem eru í sambandi við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafar­laust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn mis­notkun á heita vatninu.

 

10. gr.

Virðisaukaskattur, 11% bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, nema á sölu vatns til annars en húshitunar og opnunargjald þar sem virðisaukaskatturinn er 24%.

Í gjaldskránni er ekki tekið tillit til 2% orkuskatts á smásöluverð.

 

IV. KAFLI

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af stjórn HS Veitna hf., staðfestist hér með sam­kvæmt heimild í orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnar­tíðindum. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 1180/2020.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. desember 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 28. desember 2020