Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1605/2021

Nr. 1605/2021 14. desember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu í Fjallabyggð.

1. gr.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar er heimilt að leggja á sorphirðugjald til að standa undir kostnaði bæjarins af sorphirðu og sorpeyðingu samkvæmt samþykkt nr. 84/2010 um meðhöndlun úrgangs í Fjalla­byggð.

 

2. gr.

Sorphirðugjald skal lagt á allar íbúðir sem virtar eru fasteignamati. Gjalddagar sorp­hirðu­gjalds eru hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.

 

3. gr.

Sorphirðugjöld greiðast árlega sem hér greinir:

Íbúðarhúsnæði 47.340 kr. í sorphirðugjald
Frístundahús (á skipulögðum frístundasvæðum) 23.670 kr. í sorphirðugjald

Innifalið í sorphirðugjaldi er eitt grátt sorpílát fyrir óflokkað sorp, eitt grænt sorpílát fyrir endur­vinnanlegt sorp, eitt brúnt sorpílát fyrir lífrænan úrgang sem og sorphreinsun og sorpeyðing vegna þess.

 

4. gr.

Fyrirkomulag móttöku á endurvinnslustöð í Fjallabyggð er sem hér segir:

Í upphafi árs er úthlutað einu klippikorti á íbúð (16 klipp, 4 m³) og sumarhús (8 klipp, 2 m³) sem afhent eru í þjónustuveri Ráðhúss Fjallabyggðar á Siglufirði. Notendur þurfa að framvísa klippi­kortinu til að komast inn á endurvinnslustöðvar í Fjallabyggð. Leigjendur verða að nálgast kortin hjá leigusala eða kaupa sér kort.

Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Skilt er að hafa klippikortið meðferðis þegar farið er á endurvinnslustöðina hvort sem um gjaldskyldan eða ógjaldskyldan varning er að ræða.

Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast er hægt að kaupa aukakort á kr. 12.940.

Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri Ráðhússins á Siglufirði á kr. 31.460 sem inniheldur 16 klipp fyrir 0,25 m³ eða samtals 4 m³.

Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumar­húsum, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, ýmis spilliefni og úrelt öku­tæki.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi, sem er samþykkt af bæjarstjórn Fjallabyggðar, er staðfest samkvæmt heimild í 8. gr. samþykktar um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000, samkvæmt ákvæð­um 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1352/2020 fyrir sorphirðu í Fjallabyggð.

Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 1. desember 2021.

 

Fjallabyggð, 14. desember 2021.

 

Elías Pétursson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2021