1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 14/2025 frá 7. febrúar 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1748 frá 21. júní 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1378 að því er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsaðilum, í samræmi við 46. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, sem til þess bærum til að inna af hendi eftirlit og gefa út lífræn vottorð í þriðju löndum vegna innflutnings á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 495.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995 og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995 og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|