Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 88/2018

Nr. 88/2018 16. janúar 2018

AUGLÝSING
um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma.

Í samræmi við 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breyt­ingum, eru hér með settar svofelldar reglur um skiptingu varnalína í aðalvarnarlínu og auka­varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma:

1. gr.

Aðalvarnarlínur.

Aðalvarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:

1. Hvítárlína:
Ölfusá, Hvítá að Jökulfalli, Jökulfall og Jökulkvísl í Blágnípujökul.

2. Sogs- og Bláskógalína:
Sog frá Ölfusá um Þingvallavatn og úr því um Ármannsfell í Hvalfjarðarlínu við Kvígindisfell.

3. Brúarárlína:
Brúará frá Hvítá í Brúarárskörð um Rótarsand í gíg í Lambahrauni og í gilið í Hagafelli.

4. Hvalfjarðarlína:
Úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Brunnum við Uxahryggi í Hrúðurkarla við Þórisjökul.

5. Snæfellslína:
Úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð.

6. Hvammsfjarðarlína:
Úr Hvammsfirði milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða um Laxárdalsheiði í Hrútafjörð sunnan Fjarðar­horns.

7. Gilsfjarðarlína:
Úr Gilsfirði um Snartartungu í Bitrufjörð.

8. Kollafjarðarlína:
Úr Kollafirði í Ísafjarðarbotn.

9. Tvídægrulína:
Úr Hvammsfjarðarlínu við Skeggöxl um Kvíslavötn og Arnarvatn stóra í Langjökul við Jökulstalla.

10. Miðfjarðarlína:
Úr Miðfirði um Miðfjarðarvatn í Arnarvatn stóra.

11. Vatnsneslína:
Úr Miðfjarðarvatni í Síðukrók við ósa Víðidalsár.

12. Kjalarlína:
Milli Langjökuls og Hofsjökuls.

13. Héraðsvatnalína:
Héraðsvötn og Austari-Jökulsá.

14. Eyjafjarðarlína:
Eyjafjarðará sunnan að Mjaðmá að Skjónafelli og að Miklafelli í Hofsjökli.

15. Sprengisandslína:
Úr Miklafelli í Hofsjökli um Fjórðungakvísl að Tungnafellsjökli og um Vonarskarð í Vatnajökul.

16. Skjálfandalína:
Skjálfandafljót og í Tungnafellsjökul.

17. Fjallalína:
Jökulsá á Fjöllum.

18. Jökuldalslína:
Jökla (Jökulsá á Brú, Dal) og Hálslón.

19. Lagarfljótslína:
Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót.

20. Reyðarfjarðarlína:
Úr Reyðarfirði upp með þjóðvegi og þaðan upp í Áreyjatind. Úr Áreyjatindi í Sandfell þaðan niður í Gilsá í Grímsá. Grímsá í mörk Vaðs og Geirólfsstaða og þaðan yfir í Hallormsstaðargirðingar í Gilsá í Gilsárdal í Löginn.

21. Hamarsfjarðarlína:
Hamarsá í Hamarsfirði í Þrándarjökul og þaðan í Vesturdalsjökul.

22. Breiðamerkursandslína:
Jökulsá á Breiðamerkursandi.

23. Skeiðarársandslína:
Sandgígjukvísl.

24. Tungnaárlína:
Frá Botnjökli í Mýrdalsjökli um Mælifellssand í Torfajökul, frá Hábarmi um Kirkjufellsvatn í Tungnaá og þaðan að Jökulgrindum í Vatnajökli.

25. Markarfljótslína:
Markarfljót og Fremri-Emstruá.

26. Þjórsárlína:
Þjórsá.

2. gr.

Aukavarnarlínur.

Aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:

1. Smjörfjallalína:
Um Smjörvatnsheiði og Smjörfjöll í Dalsá og til sjávar.

2. Brekkuskógarlína:
Fullsæll frá Brúará að mörkum Efri-Reykja og Brekku og í þeim að Brúará við brú á Kóngsvegi.

3. gr.

Varnarsvæði.

Samkvæmt ofangreindum varnarlínum í 1. gr. verða til eftirfarandi varnarsvæði:

  Varnarsvæði Varnarlínur
  1 Landnámshólf Hvalfjarðarlína (4) að norðan – Sogs- og Bláskógalína (2) að austan – Hvítárlína (1) að sunnan
  2 Vesturlandshólf Hvammsfjarðarlína (6) að norðan – Tvídægrulína (9) að austan – Hval­fjarðar­lína (4) að sunnan – Snæfellslína (5) að vestan
  3 Snæfellsneshólf Snæfellslína (5)
  4 Dalahólf Gilsfjarðarlína (7) að norðan – Hvammsfjarðarlína (6) að sunnan
  5 Vestfjarðahólf eystra Kollafjarðarlína (8) að vestan – Gilsfjarðarlína (7) að sunnan
  6 Vestfjarðahólf vestra Kollafjarðarlína (8)
  7 Miðfjarðarhólf Hvammsfjarðarlína (6) að norðan – Tvídægrulína (9) að vestan – Mið­fjarðar­lína (10) að austan
  8 Vatnsnesshólf Miðfjarðarlína (10) að sunnan – Vatnsneslína (11) að austan
  9 Húna- og Skagahólf Vatnsneslína (11), Miðfjarðarlína (10) og Tvídægrulína (9) að vestan – Kjalarlína (12) að sunnan – Héraðsvatnalína (14) að austan
10 Tröllaskagahólf Héraðsvatnalína (14) að vestan – Eyjafjarðarlína (15) að austan
11 Grímseyjarhólf Grímsey
12 Eyjafjarðarhólf Eyjafjarðarlína (15) að vestan – Skjálfandalína (17) að austan – Sprengi­sands­lína (16) að sunnan
13 Skjálfandahólf Skjálfandalína (17) að vestan – Fjallalína (18) að austan
14 Norðausturhólf Fjallalína (18) að vestan – Jökuldalslína (19) að austan
15 Héraðshólf Jökuldalslína (19) að vestan – Lagarfljótslína (20) að austan
16 Austfjarðahólf Lagarfljótslína (20) að vestan – Reyðarfjarðarlína (21) að sunnan
17 Suðurfjarðahólf Lagarfljótslína (20) að vestan – Reyðarfjarðarlína (21) að norðan – Hamarsfjarðarlína (22) að sunnan
18 Suðausturlandshólf Hamarsfjarðarlína (22) að norðan – Breiðamerkursandslína (23) að vestan
19 Öræfahólf Breiðamerkursandslína (23) að austan – Skeiðarársandslína (24) að vestan
20 Eyjafjalla- og Vestur-Skaftafellssýsluhólf Skeiðarársandslína (24) að austan – Markarfljótslína (26) að vestan – Tungnárlína (25) að norðan
21 Rangárvallahólf Markarfljótslína (26) og Tungnárlína (25) að austan – Þjórsárlína (27) að vestan – Sprengisandslína (16) að norðan
22 Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf Þjórsárlína (27) að austan – Hvítárlína (1) að vestan
23 Biskupstungnahólf Hvítárlína (1) að austan – Brúarárlína (3) að vestan – Kjalarlína (12) að norðan
24 Grímsnes- og Laugardalshólf Brúarárlína (3) að austan – Hvítárlína (1) að sunnan og Sogs- og Bláskógalína (2) að vestan
25 Vestmannaeyjahólf Vestmannaeyjar

4. gr.

Gildistaka og heimild.

Auglýsing þessi er sett með stoð í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Jafn­framt fellur úr gildi auglýsing nr. 793/2009, ásamt breytingum, um varnarlínur vegna sauðfjár­sjúkdóma. Auglýsingin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. janúar 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Birgitta Kristjánsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. janúar 2018