Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 20/2015

Nr. 20/2015 5. janúar 2015
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Reykjahlíðar í Birkilandi.

1. gr.

Hitaveita Reykjahlíðar selur hitaorku frá aðveituæð og dreifikerfi veitunnar í Birkilandi við Voga samkvæmt ákvæðum gjaldskrár þessarar.

2. gr.

Hitaveita Reykjahlíðar lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatns­magn er ætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi eftirlitsmanns hitaveitu.

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða skv. vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns miðað við vatns­hita í tengibrunni þar sem stofnæð og heimtaug/dreifikerfi mætast, sem hér segir:

 

a)

Fyrir vatn 80°C og heitara greiðast

kr.

156

 

b)

Fyrir vatn 70-79°C greiðast

kr.

125

 

c)

Fyrir vatn 69°C og kaldara greiðast

kr.

95

Hitaveitunni er heimilt að færa notendur milli gjaldflokka ef vatnshiti breytist.

Þar sem vatnsmælir hefur verið settur upp og ef vatnsmælir bilar áætlar hitaveitan vatns­notkunina með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hitaveitan lætur húseigendum í té auka­mæla ef þess er óskað.

4. gr.

Fyrir hverja húsveitu (1. mæli) er greitt fast mánaðargjald sem fer eftir stærð mælis sem hér segir:

 

a)

Fyrir mæli allt að ¾″

kr.

1.361

 

b)

Fyrir mæli 1″-2″

kr.

2.742

 

c)

Fyrir mæli 3″ og stærri

kr.

5.464

5. gr.

Hitaveitugjöld skv. 3. og 4. gr. verða krafin mánaðarlega, þegar eftir mælaálestur. Þó er heimilt að láta líða lengri tíma en einn mánuð milli álestra og fækka gjalddögum. Óski notandi þess að lesið sé af mæli hans utan reglubundins álestrartíma hitaveitunnar og honum gerður sérstakur reikningur skal hann greiða fyrir það gjald kr. 1.241.

Gjalddagi hitaveitugjalda er við útsendingu reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Ber gjaldanda að greiða reikninginn í bönkum, sparisjóðum og öðrum greiðslustöðum þar sem hitaveitan ákveður. Það eru vanskil ef gjöld fyrir orkunotkun eru ekki greidd innan 30 daga frá útsendingardegi reikningsins.

6. gr.

Heimæðargjald Hitaveitu Reykjahlíðar í Birkilandi skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

 

Fyrir hverja heimæð

kr.

520.743

 

Stofngjald fyrir hvern mæli umfram einn á sama inntaki er

kr.

30.343

Lóðarhafar greiða auk heimtaugagjalds kostnað við lagningu heimæðar frá stofnæð hita­veitu að húsvegg fyrir lengd lagnar umfram 50 metra.

Hitaveita Reykjahlíðar hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með 7 daga fyrirvara.

Allan kostnað við lokun aðrennslis og opnun á ný greiðir sá sem er í vanskilum auk kr. 2.481 í hvert skipti.

7. gr.

Á öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast skattar samkvæmt gildandi reglum á hverjum tíma.

8. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda.

9. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis nr. 476/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. janúar 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 20. janúar 2015