1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 96/2021, frá 19. mars 2021, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1373 frá 1. október 2020 um leyfi fyrir sinkklósambandi af lýsíni og glútamínsýru sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 8. apríl 2021, bls. 184.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1379 frá 1. október 2020 um leyfi fyrir L-systíni, sem er framleitt með Pantoea ananatis NITE BP-02525, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 8. apríl 2021, bls. 188.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2021.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
|