Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 865/2016

Nr. 865/2016 5. október 2016

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 stað­fest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðal­námskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðal­námskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef ráðuneytisins http://www.menntamalaraduneyti.is/menntamal/framhaldsskolar/stadfestar-namsbrautarlysingar/.

2. gr.

Heiti námsbrautarRaðnúmer

Alþjóðabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(15-74-3-6)

Félagsfræðabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(16-141-3-6)
Félagsvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (15-73-3-6)
Félagsvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-198-3-6)
Félagsvísindabraut – íþróttaafrekssvið, stúdent, hæfniþrep 3 (16-195-3-6)
Framhaldsskólabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 1 (15-157-1-1)

Heilsunuddbraut – heilsunuddari, hæfniþrep 3

(16-42-3-9)
Hönnunar- og markaðsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (15-78-3-7)

Íþróttabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(15-77-3-7)
Íþróttabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-122-3-7)

Listnámsbraut, stúdent, hæfniþrep 3

(15-76-3-7)

Málabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(16-197-3-6)
Málabraut – íþróttaafrekssvið, stúdent, hæfniþrep 3 (16-193-3-6)

Náttúrufræðabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(16-140-3-6)
Náttúrufræðibraut – búfræðisvið, stúdent, hæfniþrep 3 (16-99-3-6)
Náttúrufræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (15-72-3-6)
Náttúrufræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-170-3-6)
Nýsköpunarbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-163-3-7)

Opin braut, stúdent, hæfniþrep 3

(16-164-3-6)
Opin braut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-199-3-6)
Opin braut – íþróttaafrekssvið, stúdent, hæfniþrep 3 (16-194-3-6)
Opin stúdentsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-142-3-6)

Raunvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(16-189-3-6)
Raunvísindabraut – íþróttaafrekssvið, stúdent, hæfniþrep 3 (16-190-3-6)

Sjúkraliðabraut – sjúkraliði, hæfniþrep 3

(16-171-3-8)
Sjúkraliðabraut – sjúkraliði, hæfniþrep 3 (16-182-3-8)
Stúdentsbraut – opin lína, stúdent, hæfniþrep 3 (16-116-3-6)

Tölvubraut, stúdent, hæfniþrep 3

(16-120-3-6)

Viðskiptabraut, stúdent, hæfniþrep 3

(15-75-3-6)
Viðskipta- og hagfræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (16-175-3-6)
Viðskipta- og hagfræðibraut – íþróttaafrekssvið, stúdent, hæfniþrep 3 (16-196-3-6)

Þjónustubraut – félagsliði, hæfniþrep 2

(16-40-2-5)
Þjónustubraut – félagsmála- og tómstundaliði, hæfniþrep 2 (16-51-2-5)
Þjónustubraut – leikskólaliði, hæfniþrep 2 (16-39-2-5)
Þjónustubraut – stuðningsfulltrúi í skóla, hæfniþrep 2 (16-50-2-5)

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 5. október 2016.

Illugi Gunnarsson.

Ásta Magnúsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. október 2016