Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 8/2018

Nr. 8/2018 9. febrúar 2018

FORSETAÚRSKURÐUR
um sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrifstofur.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu utanríkisráðherra og með vísan til 4. gr. laga nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands, eru hér með sett eftirfarandi ákvæði:

1. a. Sendiráð skulu vera í Berlín, Brussel, Genf, Helsinki, Kampala, Kaupmannahöfn, Lilongwe, London, Moskvu, Nýju-Delhi, Ottawa, Ósló, París, Peking, Stokkhólmi, Tókýó og Washington. Sendiráðin í Brussel, Genf, Kampala, London og París skulu jafnframt gegna hlutverki fastanefnda gagnvart nánar tilteknum alþjóðastofnunum.
  b. Fastanefndir skulu vera í Brussel, New York, Róm og Vín. Fastanefndin í New York skal jafnframt gegna hlutverki sendiráðs gagnvart nánar tilteknum ríkjum.
  c. Aðalræðisskrifstofur skulu vera í New York, Nuuk, Winnipeg og Þórshöfn.
     
2. Umdæmi sendiráða skulu vera sem hér segir:
  a. Berlín. Auk Þýskalands skal umdæmi sendiráðsins vera Króatía, Montenegró, Pólland og Serbía.
  b. Brussel. Auk Belgíu skal umdæmi sendiráðsins vera Holland, Lúxemborg og San Marínó. Sendiráðið skal jafnframt gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Evrópu­sambandinu (EU).
  c. Genf. Auk Sviss skal umdæmi sendiráðsins vera Liechtenstein. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA), skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóðanna í Genf (UNOG), Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), Alþjóða­fjarskiptasambandinu (ITU), Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), Alþjóða­hugverka­stofnuninni (WIPO), Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og Alþjóða­vinnumála­stofnun­inni (ILO).
  d. Helsinki. Auk Finnlands skal umdæmi sendiráðsins vera Eistland, Lettland, Litháen og Úkraína.
  e. Kampala. Auk Úganda skal umdæmi sendiráðsins vera Djibútí, Eþíópía, Kenya, Malaví og Namibía. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Afríku­sambandinu (AU) í Addis Ababa og Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) í Nairobi.
  f. Kaupmannahöfn. Auk Danmerkur skal umdæmi sendiráðsins vera Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland.
  g. Lilongwe. Umdæmi sendiráðsins skal vera Malaví. Sendiherra Íslands gagnvart Malaví skal sitja í Kampala.
  h. London. Auk Bretlands skal umdæmi sendiráðsins vera Írland, Jórdanía, Katar og Malta. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Alþjóðasiglingamála­stofnuninni (IMO).
  i. Moskva. Auk Rússlands skal umdæmi sendiráðsins vera Armenía, Aserbaísjan, Belarús, Kasakstan, Kirgistan, Moldóva, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.
  j. Nýja-Delhi. Auk Indlands skal umdæmi sendiráðsins vera Bangladess, Nepal og Srí Lanka.
  k. Ottawa. Auk Kanada skal umdæmi sendiráðsins vera Bólivía, Costa Rica, Hondúras, Panama og Venesúela.
  l. Ósló. Auk Noregs skal umdæmi sendiráðsins vera Egyptaland, Grikkland, Íran og Pakistan.
  m. París. Auk Frakklands skal umdæmi sendiráðsins vera Alsír, Andorra, Ítalía, Líbanon, Marokkó, Mónakó, Portúgal, Spánn og Túnis. Sendiráðið skal gegna hlut­verki fasta­nefndar gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í París og Menningar­mála­stofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París.
  n. Peking. Auk Kína skal umdæmi sendiráðsins vera Kambódía, Laos, Mongólía, Norður-Kórea, Suður-Kórea, Taíland og Víetnam.
  o. Stokkhólmur. Auk Svíþjóðar skal umdæmi sendiráðsins vera Albanía og Kúveit.
  p. Tókýó. Auk Japans skal umdæmi sendiráðsins vera Brúnei, Filippseyjar og Tímor-Leste.
  q. Washington. Auk Bandaríkjanna skal umdæmi sendiráðsins vera Mexíkó, Paragvæ og Úrúgvæ.
     
3. Fyrirsvar fastanefnda skal vera sem hér segir:
  a. Brussel. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Atlantshafsbandalaginu (NATO) og stofnunum tengdum því.
  b. New York. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Sameinuðu þjóðunum (UN) í New York. Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs og skal umdæmi þess vera Antígva og Barbúda, Bahamaeyjar, Barbados, Belís, Dóminíka, Dóminíska lýðveldið, Grenada, Gvæjana, Haítí, Jamaíka, Kúba, Sankti Kitts og Nevis, Sankti Lúsía, Sankti Vinsent og Grenadínur, Súrínam og Trínidad og Tóbagó.
  c. Róm. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Alþjóða­sjóði um þróun landbúnaðar (IFAD).
  d. Vín. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorku­mála­stofnuninni (IAEA) og skrifstofu samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO).
     
4. Umdæmi aðalræðisskrifstofa skal vera sem hér segir:
  a. New York. Auk New York-ríkis skal umdæmi aðalræðisskrifstofunnar vera ríkin Connecticut, New Jersey og Rhode Island.
  b. Nuuk. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Grænland.
  c. Winnipeg. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera fylkið Manitoba, fylkið Saskatchewan, að undanskilinni borginni Regina, og fylkið Alberta, að undanskildum borgunum Calgary og Edmonton.
  d. Þórshöfn. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Færeyjar.
     
5. Utanríkisráðuneytið fer með fyrirsvar gagnvart öðrum alþjóðastofnunum og ríkjum sem Ísland hefur stjórnmálasamband við, m.a. með skipun sendiherra eða fastafulltrúa með búsetu í Reykjavík eftir því sem ástæða er til.

Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi forsetaúrskurður nr. 117 frá 30. nóv­ember 2014.

Gjört í Reykjavík, 9. febrúar 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Guðlaugur Þór Þórðarson.


A deild - Útgáfud.: 20. febrúar 2018