Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 603/2021

Nr. 603/2021 12. maí 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

1. gr.

B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1170 frá 16. júlí 2020 um hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1397, skv. ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 128/2020 frá 25. september 2020. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, 29. október 2020 bls. 337.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. maí 2021.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.


B deild - Útgáfud.: 28. maí 2021