Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 53/2018

Nr. 53/2018 19. júní 2018

LÖG
um breytingu á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLI

Breyting á lögum um samgönguáætlun, nr. 33/2008, með síðari breytingum.

1. gr.

    Í stað orðsins „tólf“ og orðanna „fjögurra ára áætlun“ í 1. gr. laganna kemur: fimmtán; og: fimm ára aðgerðaáætlun.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „fjögurra“ og „tólf“ í 1. mgr. kemur: að minnsta kosti þriggja; og: fimmtán.
  2. Í stað orðsins „fjögurra“ í 5. mgr. kemur: fimm.
  3. Lokamálsliður 6. mgr. orðast svo: Samgönguráð undirbýr og semur tillögu að samgönguáætlun til ráðherra.
  4. 7. mgr. fellur brott.

3. gr.

    3. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:

Aðgerðaáætlun samgönguáætlunar.

    Gera skal aðgerðaáætlun fyrir fyrsta fimm ára tímabil hverrar samgönguáætlunar, sbr. 2. gr. Í aðgerðaáætlun skal vera áætlun fyrir hvert ár tímabilsins fyrir hverja stofnun og fyrirtæki samgöngu­mála sem eiga undir ráðuneytið.

    Sundurliðun aðgerðaáætlunar skal hagað þannig að ábyrgð og fjárheimildir hverrar stofnunar og fyrirtækis komi skýrt fram. Gerð skal grein fyrir fjáröflun og útgjöld skulu sundurliðuð eftir ein­stökum framkvæmdum, rekstri, þjónustu og viðhaldi eftir því sem við á. Í aðgerðaáætlun skal m.a. vera sundurliðun í samræmi við framsetningu fjárlaga. Tekjur og gjöld aðgerðaáætlunar skulu rúmast innan ramma samgönguáætlunar.

    Áður en aðgerðaáætlun samkvæmt ákvæði þessu er unnin leggur ráðherra fram fjárhagsramma til samgönguráðs.

4. gr.

    4. gr. laganna orðast svo:

    Ráðherra skipar samgönguráð sem gerir tillögu til ráðherra að samgönguáætlun og fimm ára aðgerðaáætlun samgönguáætlunar, stefnu og forgangsröðun, að fengnum áherslum ráðherra, sbr. 2. og 3. gr. Í samgönguráði sitja tveir fulltrúar ráðherra og skal annar þeirra vera formaður, for­stjóri Vegagerðarinnar, forstjóri Samgöngustofu og forstjóri Isavia ohf. Þá situr í samgönguráði full­trúi þeirrar skrifstofu ráðuneytisins sem fer með samgöngumál. Skipunartími samgönguráðs tak­markast við embættistíma þess ráðherra sem skipar.

    Við gerð samgönguáætlunar skal gætt að samráði við hagsmunaaðila. Jafnframt skal almenningi gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og athugasemdum í opnu samráðsferli.

5. gr.

    Í stað orðanna „fjögurra ára áætlun“ og „fjögurra ára áætlunar“ í 6. gr. laganna og fyrirsögn hennar kemur: fimm ára aðgerðaáætlun; og: fimm ára aðgerðaáætlunar.

II. KAFLI

Breyting á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, með síðari breytingum.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „fjögurra“ og „tólf“ í 3. mgr. kemur: að minnsta kosti þriggja; og: fimmtán.
  2. 5.–7. mgr. orðast svo:

        Í fjarskiptaáætlun skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Í aðgerða­áætlun skal gera grein fyrir fjáröflun og útgjöldum eftir einstökum verkefnum eins og við á. Áður en aðgerðaáætlun er unnin leggur ráðherra fram fjárhagsramma til fjarskipta­ráðs.

        Ráðherra skipar fjarskiptaráð sem gerir tillögu til ráðherra að fjarskiptaáætlun og fimm ára aðgerðaáætlun, stefnu og forgangsröðun, að fengnum áherslum ráðherra. Í fjar­skipta­ráði sitja tveir fulltrúar ráðherra og skal annar þeirra vera formaður, ásamt forstjórum Póst- og fjarskiptastofnunar og Þjóðskrár Íslands. Þá situr í fjarskiptaráði fulltrúi þeirrar skrifstofu ráðuneytisins sem fer með fjarskiptamál. Skipunartími fjarskiptaráðs takmark­ast við embættistíma þess ráðherra sem skipar. 

        Við gerð fjarskiptaáætlunar skal gætt að samráði við hagsmunaaðila. Jafnframt skal almenn­ingi gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og athugasemdum í opnu samráðs­ferli.

III. KAFLI

Breyting á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015.

7. gr.

    2. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:

    Hlutverk stýrihópsins er að efla samhæfingu innan Stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum, tryggja aðkomu allra ráðuneyta að undirbúningi byggðaáætlunar, sbr. 3. gr., og tryggja virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þessum málaflokki.

8. gr.

    Við lögin bætist ný grein, 2. gr. a, sem orðast svo ásamt fyrirsögn:

Byggðamálaráð.

    Ráðherra skipar byggðamálaráð sem gerir tillögu til ráðherra að stefnumótandi byggðaáætlun og fimm ára aðgerðaáætlun að fengnum áherslum ráðherra, sbr. 3. gr. Í byggðamálaráði sitja tveir fulltrúar ráðherra og skal annar þeirra vera formaður, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, for­stjóri Byggðastofnunar og fulltrúi þeirrar skrifstofu ráðuneytisins sem fer með byggðamál. Skip­unar­tími ráðsins takmarkast við embættistíma þess ráðherra sem skipar.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:

        Ráðherra leggur á að minnsta kosti þriggja ára fresti fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun til fimmtán ára í senn.

  2. Lokamálsliður 2. mgr. fellur brott.
  3. 3. og 4. mgr. orðast svo:

        Í byggðaáætlun skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Skal þar m.a. gerð grein fyrir sérstökum áformum ríkisins um stuðning við atvinnulíf á skilgreindum stuðningssvæðum byggðakorts af Íslandi sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur samþykkt fyrir tiltekið tímabil og tengingu þeirra við sóknaráætlanir. Áður en aðgerðaáætlun er unnin leggur ráðherra fram fjárhagsramma til byggðamálaráðs.

        Við undirbúning byggðaáætlunar og fimm ára aðgerðaáætlunar skal haft samráð við öll ráðuneyti á vettvangi stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál, sbr. 2. gr. Þá skal haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög. Horfa skal einnig til þeirrar stefnu­mörkunar sem fram kemur í stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga sem gerð er samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Loks skal haft samráð við hagsmunaaðila eftir þörfum og skal almenningi gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og athuga­semd­um í opnu samráðsferli.

IV. KAFLI

Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, með síðari breytingum.

10. gr.

    Við 2. gr. laganna bætast þrjár nýjar málsgreinar sem orðast svo:

    Ráðherra sveitarstjórnarmála leggur að minnsta kosti á þriggja ára fresti fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga til fimmtán ára í senn. Í áætluninni skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára á þessu sviði.

    Við gerð tillagna að stefnumótandi áætlun og aðgerðaáætlun skv. 4. mgr. skal haft samráð við ráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög. Þá skal haft samráð við hagsmunaaðila eftir þörfum. Horfa skal einnig til þeirrar stefnumörkunar sem fram kemur í byggðaáætlun og sóknar­áætlunum sem gerðar eru samkvæmt lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir. Loks skal almenn­ingi gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og athugasemdum í opnu samráðsferli.

    Ráðherra skal í reglugerð setja nánari ákvæði um gerð stefnumótandi áætlunar og aðgerða­áætlunar, sbr. 4. og 5. mgr.

V. KAFLI

Breyting á hafnalögum, nr. 61/2003, með síðari breytingum.

11. gr.

    Í stað orðsins „tveggja“ í 3. mgr. 25. gr. laganna kemur: að lágmarki þriggja.

VI. KAFLI

Breyting á lögum um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005, með síðari breytingum.

12. gr.

    Í stað orðanna „er jafnframt verkefnastjórn fjarskiptaáætlunar og skal hún“ í 2. málsl. 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: skal.

13. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 19. júní 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Ásmundur Einar Daðason.


A deild - Útgáfud.: 21. júní 2018