Hinn 26. september 2019 var framkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar afhent aðildarskjal Íslands vegna marghliða samnings um breytingar á tvísköttunarsamningum til þess að koma í veg fyrir rýrnun skattstofna og tilfærslu sem gerður var í París 24. nóvember 2016.
Við afhendingu aðildarskjalsins voru lagðar fram ákveðnar tilkynningar og yfirlýsingar fyrir Íslands hönd í samræmi við 6. mgr. 28. gr. og 3. mgr. 29. gr. samningsins.
Samningurinn öðlast gildi hvað Ísland varðar 1. janúar 2020.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og tilkynningarnar og yfirlýsingarnar sem fylgiskjal 2.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 18. desember 2019.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|