Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 679/2017

Nr. 679/2017 16. júní 2017

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr.

Eigendur katta í Sveitarfélaginu Hornafirði skulu greiða gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar nr. 912/2015 um kattahald og gælu­dýra­hald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austur­lands­svæðis.

2. gr.

Vegna hvers kattar skal innheimt skráningargjald sem hér segir:

Fyrsta skráningargjald 10.000 kr. gildir fram að næsta gjalddaga.
Skráning eftir útrunnin frest er 15.000 kr. samkvæmt 4. gr. samþykktarinnar.

3. gr.

Árlegt leyfisgjald er kr. 6.000.

Innifalið í leyfisgjaldi er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitar­félagsins.

4. gr.

Handsömunargjald katta skal vera skv. 11. gr. samþykktar nr. 912/2015. Við afhendingu hand­samaðs kattar skal greiða kr. 8.000. Þurfi að vista kött yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð kr. 6.500 fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhring.

Ef til aflífunar kattar kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan útlagðan aflífunarkostnað.

5. gr.

Gjalddagi skv. 3. gr. er 1. ágúst og eindagi er 1. september ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Við afskráningu á ketti skal endurgreiða árlegt leyfisgjald í hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru á árinu. Ef til aflífunar kattar kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan áfallinn kostnað.

6. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með vísun til heimilda í samþykkt um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis nr. 912/2015 og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum. Gjaldskráin tekur þegar gildi. Jafnframt fellur eldri gjaldskrá vegna hunda- og kattahalds úr gildi.

Sveitarfélaginu Hornafirði, 16. júní 2017. 

Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 25. júlí 2017