Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 540/2018

Nr. 540/2018 14. maí 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 130. gr. reglnanna:

  1. Á eftir 4. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
    Deildinni er heimilt að skipuleggja stuttar hagnýtar námsleiðir í grunnnámi, sbr. ákvæði 55. gr. reglna þessara.
  2. Á eftir núverandi 6. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
    Diplómanám í tæknigreinum er sjálfstætt 60 eininga grunnnám. Nám þetta er hægt að fá metið inn í nám til BS-prófs í tæknifræði.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 14. maí 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2018