Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1078/2014

Nr. 1078/2014 1. desember 2014
GJALDSKRÁ
fyrir Hitaveitu Drangsness.

1. gr.

Hitaveitan sér um dreifingu á heitu vatni á orkuveitusvæði sínu og innheimtir gjald fyrir varmaorku og annað sem hér er tilgreint, eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari.

2. gr.

Notendagjöld eru sem hér segir:

 

Vatnsgjald um vatnsmæli fyrir rúmmetra vatns

kr.

81,62

 

Fastagjald fyrir hvern mæli á dag verði

kr.

62,234

 

Lokunargjald

kr.

8.000,00

 

Gjald fyrir aukaálestur

kr.

6.000,00

Miðað er við að meðalhitastig vatns í veitukerfinu sé 57°C við inntak hjá notendum við hámarksrennsli (a.m.k. 5 lítrar á mínútu, og svarar það til notkunar 7,2 rúmmetra vatns á sólarhring). Notendur geta sótt um afslátt á vatnsgjaldi ef hitastig vatnsins við inntak er 55°C eða lægra. Hitastig skal mælt með mælitækjum veitunnar og skal miða við snertihitastig mælabotns eftir að áætlað hámarksrennsli, sbr. að ofan, hefur staðið í a.m.k. 15 mínútur.

Tengigjöld eru sem hér segir:

 

Heimæðagjald fyrir íbúðarhús verði

kr.

556.500

 

Heimæðagjöld fyrir húsnæði yfir 1200 rúmmetra að stærð

kr.

892.500

 

Heimæðagjöld dreifbýli

kr.

556.500

 

að auki skal greiða aukalega pr. lengdarmetra frá stofnæð

kr.

3.900

Sveitarstjórn er heimilt að veita afslátt af tengigjöldum og dreifa greiðslum á allt að 12 mánuði. Þá er sveitarstjórn heimilt að semja um lægri notendagjöld til stórnotenda í atvinnurekstri.

3. gr.

Notendagjöld skv. 2. gr. verða krafin mánaðarlega með gjalddaga 30. dag næsta mánaðar og eindaga 20 dögum síðar. Lesið verður af mælum eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Heimilt er að vaxtareikna ógreidd notendagjöld frá gjalddaga hafi þau ekki verið greidd á eindaga.

4. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka fyrir rennsli til notanda sem vanrækir að greiða gjöld til veitunnar skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um lokun skal tilkynna á sannanlegan hátt með 7 daga fyrirvara. Sá sem vanskilum veldur skal í hvert sinn greiða lokunargjald, sbr. 2. gr. gjaldskrár þessarar. Öll gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda.

5. gr.

Hitaveitustjóra eða starfsmönnum veitunnar skal hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum lokum, hitagjöfum og vatnsæðum, sem eru í sambandi við hitaveituna. Er notanda hitaveitunnar skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hitaveitustjóra um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

6. gr.

Hitaveitan leggur dreifikerfi, heimæðar og inntök inn fyrir vegg í húsnæði notanda. Kostar uppsetningu rennslismælis, síu og þrýstimælis. Annar búnaður við tengingu húsnæðis er á kostnað notanda.

7. gr.

Á öllum hitakerfum tengdum hitaveitu skal vera hitamælir á útrennsli, þrýstimælir og öryggisloki, staðsett samkvæmt fyrirmælum veitustjóra. Á hitakerfum, tengdum dreifi­kerfi hitaveitu, skal nota sjálfvirka loka á afrennsli sem halda hæfilegum þrýstingi á hita­kerf­inu.

8. gr.

Hitaveituvatn sem runnið hefur í gegnum hitunarkerfi húss (bakrennsli) er eign hita­veit­unnar. Hitaveitan getur heimilað notkun þess til upphitunar í gróðurhúsum, bíla­stæðum og öðrum stöðum. Hitaveitan getur afturkallað slík leyfi án bóta, ef nauð­syn­legt er vegna almennra orkusparnaðarsjónarmiða. Óheimilt er að tengja vatns­dælur, varmadælur og eða annan slíkan búnað við bakrennslið nema að fengnu sam­þykki hitaveitunnar.

9. gr.

Breytingar á gjöldum skv. 2. gr. skulu háðar samþykktum sveitarstjórnar Kaldrananes­hrepps og skulu þær staðfestar af iðnaðar- og viðskiptaráðherra hverju sinni.

10. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Kaldrananeshrepps, stað­festist hér með samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967 og reglugerð fyrir Hitaveitu Drangs­ness nr. 301/2000 til þess að öðlast gildi frá og með 1. janúar 2015. Jafnframt er felld úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1190/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 16. desember 2014