Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2024

Nr. 10/2024 15. febrúar 2024

AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 218/2024 um (22.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnar­innar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/393 frá 26. janúar 2024 um breytingu á II., IV., IX. og X. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum hóf- og klaufdýrum og kímefnum úr þeim frá Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku og Breska konungsríkinu til Sambandsins og um leiðréttingu á V. og XXII. viðauka við hana að því er varðar skrána yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum og kímefnum úr þeim til Sambandsins og til umflutnings sendinga um Breska konungsríkið sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 7. gr. laga nr. 22/1994,um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 29. gr. b laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 15. febrúar 2024.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

 

Fylgiskjal.
(PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 23. febrúar 2024