1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 27. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/386 frá 9. mars 2020 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB að því er varðar skrána yfir þriðju lönd eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur til Sambandsins á kjötafurðum og meðhöndluðum mögum, þvagblöðrum og þörmum, og um breytingu á II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar skrána yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á nýju kjöti til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/386, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. mars 2020.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|