Ráðuneytið hefur staðfest meðfylgjandi samþykkt fyrir byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. en stofnendur byggðasamlagsins eru sveitarfélögin Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Byggðasamlagið er stofnað skv. 94. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og er tilgangur þess að annast lögbundin verkefni byggingarfulltrúa skv. lögum nr. 160/2010, um mannvirki, byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með síðari breytingum og öðrum lögum og reglugerðum sem kveða á um hlutverk byggingarfulltrúa og lögbundin verkefni skipulagsfulltrúa skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 4. janúar 2022.
F. h. innviðaráðherra,
Guðni Geir Einarsson.
Hafdís Gísladóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|