Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 610/2015

Nr. 610/2015 16. júní 2015

SAMÞYKKT
um afgreiðslur byggingarnefndar Stykkishólmsbæjar.

1. gr.

Byggingarfulltrúi Stykkishólmsbæjar fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.

2. gr.

Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að skipulags- og byggingarnefnd Stykkishólmsbæjar hafi samþykkt útgáfuna, en nefndin annast verkefni byggingarnefndar, sbr. 7. gr. laga um mannvirki.

3. gr.

Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við skipulags- og byggingarnefnd Stykkishólmsbæjar um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar.

Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis skipulags- og byggingarnefndar Stykkishólmsbæjar áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form, nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.

4. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga, nr. 123/2010, stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og samþykktar nr. 731/2013 um stjórn Stykkishólmsbæjar eftir því sem við á.

5. gr.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 16. júní 2015.

F. h. r.

Vigdís Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.


B deild - Útgáfud.: 7. júlí 2015