Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 403/2019

Nr. 403/2019 15. apríl 2019

REGLUGERÐ
um (9.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 19. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1246 frá 18. september 2018 um breyt­ingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar færslu eimis úr viðarediki á skrá Sambandsins yfir bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15, frá 21. febrúar 2019, bls. 654.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. apríl 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. maí 2019