Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 206/2022

Nr. 206/2022 7. febrúar 2022

AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2022.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2022 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á einstak­linga. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2022. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaks­árið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. febrúar 2022.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2022