Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 600/2018

Nr. 600/2018 23. maí 2018

REGLUGERÐ
um heimild til lagningar sæstrengja og neðansjávarleiðslna.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að vernda hafið, auðlindir þess og lífríki, með því að tryggja að einungis þeim sem aflað hafa tilskilinna leyfa og uppfylla skilyrði reglugerðarinnar verði heimilt að leggja sæstrengi og neðansjávarleiðslur. 

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerðin gildir um heimild til lagningar sæstrengja og neðansjávarleiðslna frá stór­straums­fjörumáli, í mengunarlögsögu Íslands og eins langt og réttindi og skyldur Íslands ná.

Reglugerðin gildir ekki um sæstrengi sem lagðir eru vegna öryggis ríkisins og þátttöku Íslands í samvinnu við önnur ríki til að tryggja frið og öryggi. 

3. gr.

Skilgreiningar.

Merking hugtaka í reglugerð þessari er sem hér segir:

Sæstrengur: Hvers konar strengur sem lagður er í sjó miðað frá stórstraumsfjörumáli, einkum til að flytja orku, vegna fjarskipta eða rannsókna.

Neðansjávarleiðsla: Hvers konar leiðsla sem lögð er í sjó miðað frá stórstraumsfjörumáli til að flytja hvers kyns efni, á hvaða formi sem er.

Framkvæmdaraðili: Sá aðili, opinber eða einkaaðili sem óskar eftir að leggja sæstreng eða neðansjávarleiðslu. 

4. gr.

Krafa um samþykki fyrir lagningu sæstrengs eða neðansjávarleiðslu.

Óheimilt er að reka, eiga eða leggja sæstreng eða neðansjávarleiðslu án þess að hafa áður fengið til þess:

  1. Samþykki Umhverfisstofnunar, sbr. lög nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.
  2. Framkvæmdaleyfi sveitarfélaga innan netlaga skv. skipulagslögum, nr. 123/2010.
  3. Samþykki Samgöngustofu, sbr. lög um vitamál, nr. 132/1990.

Eftir atvikum skal leita byggingarleyfis Mannvirkjastofnunar, sbr. lög nr. 160/2010 um mannvirki og leyfis Orkustofnunar, sbr. raforkulög nr. 65/2003. 

5. gr.

Umsókn til Umhverfisstofnunar um lagningu sæstrengs eða neðansjávarleiðslu.

Með umsókn til Umhverfisstofnunar skulu fylgja upplýsingar um framkvæmd lagningar, sbr. 1.-5. tl., eins og við á hverju sinni:

  1. Lýsing á umfangi framkvæmdar og umfangi einstakra framkvæmdaþátta og uppdrættir af staðsetningu og legu.
  2. Upplýsingar um gerð, tegund og tilgang lagningar viðkomandi sæstrengs eða neðan­sjávarleiðslu.
  3. Upplýsingar um hvernig framkvæmd fellur að gildandi skipulagsáætlunum eða skipulags­stefnu á viðkomandi svæði.
  4. Lýsing á staðháttum á framkvæmdarsvæði.
  5. Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum eða ákvörðun Skipulagsstofnunar um að framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Telji Umhverfisstofnun að upplýsingar í umsókn séu ófullnægjandi, eftir að hafa gefið fram­kvæmdaraðila kost á úrbótum, skal stofnunin vísa umsókn frá skriflega og gera grein fyrir þeim þáttum sem vanreifaðir eru.

6. gr.

Samþykki Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstofnun getur á grundvelli þeirra upplýsinga sem krafist er í 5. gr. reglugerðar þessarar og laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda:

  1. veitt umsókn samþykki,
  2. hafnað því að gefa út samþykki eða
  3. bundið samþykki skilyrðum.

Við ákvörðun um samþykki lagningar skal taka fullt tillit til opinberrar skipulagsstefnu, skipulags­áætlana og viðeigandi reglna sem gilda á hverjum tíma.

Umhverfisstofnun gefur út samþykki vegna lagningar sæstrengs eða neðansjávarleiðslu að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar og annarra aðila ef þörf krefur.

Samþykki Umhverfisstofnunar fellur úr gildi hafi framkvæmd ekki verið hafin innan 24 mánaða frá útgáfu þess. 

7. gr.

Tilkynning til sjómælingasviðs Landhelgisgæslu Íslands.

Umhverfisstofnun skal tilkynna sjómælingasviði Landhelgisgæslu Íslands um þá sæstrengi og neðansjávarleiðslur sem stofnunin veitir samþykki fyrir. 

8. gr.

Þvingunarúrræði og refsiviðurlög.

Umhverfisstofnun hefur heimildir skv. V. kafla laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda til að beita þvingunarúrræðum ásamt öðrum úrræðum til að framfylgja ákvæðum reglugerðarinnar. 

9. gr.

Kæruheimild.

Ákvarðanir Umhverfisstofnunar er lúta að lagningu sæstrengja og neðansjávarleiðslna sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 4. mgr. 28. gr. laga nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 

10. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í p-lið 6. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda, öðlast þegar gildi.

Reglugerðin er sett að höfðu samráði við þau ráðuneyti sem fara með samgöngumál og málefni sjávarútvegs og Samband íslenskra sveitarfélaga sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 23. maí 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2018