Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 444/2021

Nr. 444/2021 26. apríl 2021

REGLUGERÐ
um bann við ónauðsynlegum ferðalögum frá skilgreindum hááhættusvæðum vegna COVID-19.

1. gr.

Til og með 31. maí 2021 er útlendingum, sem koma frá eða dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum á svæði þar sem 14 daga nýgengi smita er yfir 700 á hverja 100.000 íbúa eða fullnægjandi upplýsingar liggja ekki fyrir um svæðið, óheimilt að koma til landsins þrátt fyrir að þeir fullnægi skilyrðum sem fram koma í 5. gr., sbr. 6. mgr. 29. gr. reglugerðar um för yfir landa­mæri og 106. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa fasta búsetu hér á landi, þ. á m. á grundvelli dvalarleyfis eða annars konar dvalar- eða búseturéttar.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um aðstandendur íslenskra ríkisborgara og útlendinga sem búsettir eru hér á landi.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem eru í nánu parsambandi, sem staðið hefur um lengri tíma, með íslenskum ríkisborgara eða útlendingi sem er löglega búsettur hér á landi.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem geta framvísað vottorði um bólusetningu eða vottorði um að COVID-19 sýking sé afstaðin í samræmi við 6. gr. reglugerðar um sóttkví og ein­angrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

Ákvæði 1. mgr. á ekki heldur við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erinda­gjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Einstaklinga og sendinefndir sem koma til landsins á vegum íslenskra stjórnvalda, starfs­menn sendiskrifstofa og aðra fulltrúa erlendra ríkja, starfsmenn alþjóðastofnana og ein­staklinga í boði þeirra sem þurfa að koma til landsins vegna starfsemi þessara stofnana, fulltrúa herliðs, og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð og almannavörnum og fjölskyldur framangreindra aðila.
  7. Námsmenn.
  8. Einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna viðskipta eða starfa sem eru þess eðlis að þau er ekki hægt að framkvæma síðar eða erlendis.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í ákvæði til bráðabirgða við lög um útlendinga, sbr. 2. gr. laga nr. 23/2021 um breytingu á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga, öðlast gildi 27. apríl 2021.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 26. apríl 2021.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2021