Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 245/2017

Nr. 245/2017 10. mars 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1166/2016 um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

1. gr.

Í stað orðanna „eigi síðar en 12 mánuðum frá lokum reikningsárs“ í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: fyrir lok hvers almanaksárs að loknu reikningsári.

Á eftir orðinu „skv. 2.“ í 1. málsl. 4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: gr.

2. gr.

1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

„Ríki-fyrir-ríki skýrsla skal innihalda samanlagðar upplýsingar um fjárhæð hagnaðar/taps fyrir tekjuskatt, áfallinn tekjuskatt á yfirstandandi rekstrarári, greiddan tekjuskatt, skráð hlutafé, óráð­stafað eigið fé, fjölda starfsmanna ásamt upplýsingum um efnislegar eignir aðrar en handbært fé að því er varðar hvert það ríki þar sem heildarsamstæðan starfar.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 91. gr. a laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, tekur þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 10. mars 2017.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Ása Ögmundsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. mars 2017