Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1443/2020

Nr. 1443/2020 14. desember 2020

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Flúða.

1.    Almennt.

Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða.

Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðisaukaskattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjald­skrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.

 

2.    Varmaorka.

2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti.

Fast gjald á mæli kr./dag
Mælastærð DN 15 52,18
Mælastærð DN 20 64,15
Mælastærð DN 25 83,85
Mælastærð DN 32 105,83
Mælastærð DN 40 126,27
Mælastærð DN 50 210,73

 

Fasta gjaldinu er dreift niður á tímabil reikninga.

 

2.2 Rúmmetragjald.

Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða lækkunar á hita vatnsins.

 

H 1. Almenn heita vatns notkun.

Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Sala um mæli kr./m³
Rúmmetragjald skv. mælingu 93,35

  

H 2.

Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað.

Atvinnufyrirtæki til framleiðslu 74,97

 

H 3.

Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir.

Garðyrkja 33,87

 

H4. Heimæðagjöld.

Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar:

Heimæðagjöld – almenn kr.
Málstærð DN 20 mm 225.605
Málstærð DN 25 mm 277.844
Málstærð DN 32 mm 417.243
Málstærð DN 40 mm 833.007
Málstærð DN 50 mm 1.383.271

 

Heimæðagjöld fyrir stærri inntök en 50 mm skal reikna sérstaklega.

Gjald fyrir hvern lengdarmetra í heimæð, umfram 25 m er 1% af heimæðagjaldi

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

 

Heimæðagjöld – sumarhús kr.
20 mm 545.750
25 mm 976.524

 

Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

Þar sem heimæðagjöld og stofngjöld reiknast sérstaklega greiðast þau þannig að við upphaf verksins greiðist 65% af kostnaðaráætlun og 35% greiðist þegar lagningu er lokið.

 

3.    Önnur gjöld og ákvæði.

Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda 2.499 kr.
Lokunargjald 4.858 kr.

 

Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun.

Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði skulu greiða fast gjald sem hér segir:

Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði 34,89 kr.

 

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er í veitustjórn þann 3. nóvember 2020 og síðan af sveitarstjórn Hrunamannahrepps 5. nóvember 2020 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 1172/2019.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. desember 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2020