Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1121/2019

Nr. 1121/2019 13. desember 2019

REGLUGERÐ
um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2020.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breyt­ingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. 256.789 3.081.468 
Hálfur ellilífeyrir, skv. 2. mgr. 23. gr. 128.395 1.540.734 
Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr.   48.108   577.296
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr.   35.565   426.780
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr.   48.108   577.296
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr.   35.565   426.780
Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr.   48.108   577.296
Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. 154.058 1.848.696
     
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr.     77.084   925.008
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. 3.744    
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr.     35.565   426.780

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breyt­ingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

  kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr.   10.296   123.552
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum    
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr.   26.769   321.228
Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr.   35.565   426.780
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 192.433 2.309.196 
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 161.732 1.940.784 
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr.   52.974   635.688
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr.   39.682   476.184
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr.   48.108   577.296
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr.   64.889   778.668
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr.   52.073   624.876
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr.   17.781   213.372

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1202/2018, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. desember 2019