Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 567/2016

Nr. 567/2016 14. júní 2016

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf.

1. gr.

Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. selur afnot af heitu vatni úr veitukerfum sem gerð hafa verið og verða gerð á veitusvæði hitaveitunnar eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari sbr. reglugerð um hitaveitu og hitalagnir Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf.

2. gr.

Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. lætur hverju húsi sem tengt er veitukerfi hennar í té vatnsmagn til neysluvatnsnota og upphitunar enda fullnægi hitakerfi hússins skilyrðum, sem sett eru í reglugerð fyrir Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf. og hitafletir séu nægjanlega stórir að dómi hitaveitunnar.

Einnig selur hitaveitan afnot af heitu vatni til annarra nota en hitunar og neysluvatnsnota eftir því sem vatnsmagn leyfir og hún telur henta.

3. gr.

Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. lætur notanda í té vatnsmagn samkvæmt 1. og 2. gr. um rennslismæli sem hitaveitan leggur til og annast viðhald á. Mælir þessi skal innsiglaður og er húseiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli mælisins.

Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. lætur notanda í dreifbýli í té vatnsmagn samkvæmt 4. gr. um hemil sem hitaveitan leggur til og annast viðhald á. Hemill þessi skal innsiglaður og er húseiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli hemilsins. Heimilt er að innheimta 40% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð 8 mánuðum eftir að hitaveitutenging er tilbúin til notkunar.

4. gr.

Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt 2% af smásöluverði á heitu vatni. Virðisaukaskattur er 11% af vatni til húshitunar. Sérmæld snjóbræðsla ber 24% virðisaukaskatt.

Hitaveitugjöld fyrir þéttbýli.

Gjald fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:

Heitt vatn um rennslismæli:

  Kr. 2% skattur Með 11% vsk Með 24% vsk Grunnur
Fyrir hvern rúmmetra vatns 112,00 114,24 126,80  141,65 kr./m³
Hver rúmmetri vatns í lausasölu 224,00 228,48   283,31 kr./m³
Afgreiðslugjald frá kyndistöð 1.533,00     1.900,92  

Fast gjald er háð afköstum rennslismælisins, en óháð töxtum að öðru leyti.

Því er skipt í fjóra flokka.

Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
15 mm 14.965,00 15.264,30 16.943,37 kr./ári
20 mm – 25 mm 33.215,00 33.879,30 37.606,02 kr./ári
32 mm – 50 mm 66.065,00 67.386,30 74.798,80 kr./ári
65 mm og stærri 91.980,00 93.819,60 104.139,75 kr./ári

Hitaveitugjöld fyrir dreifbýli.

Heitt vatn um rennslismæli:

  Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Fyrir hvern m³/hemil* 114,00 116,28 129,07 kr./m³
Aukamælir/sami notandi 114,00 116,28 129,07 kr./m³
Mín.l á mánuði, lágmark 3 l 2.440,00 2.488,80 2.762,56 mín.l/mán
Mín.l á mánuði, umfram 3 l 1.951,00 1.990,02 2.208,92 mín.l/mán
(á við þar sem eingöngu er hemill)      

* Rúmmetramæling á neysluvatni, á lögbýlum og þar sem er heilsársbúseta.

Fast gjald er háð afköstum rennslismælisins, en óháð töxtum að öðru leyti.

Þar er einn flokkur:

Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
15 mm – 20 mm 21.117,00 21.539,34 23.908,67 kr./ári
25 mm 28.105,00 28.667,10 31.820,48 kr./ári

5. gr.

Þegar afnot af hitaveitunni eru leyfð til annars en húshitunar, er veitunni heimilt að ákveða gjald fyrir slík afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.

6. gr.

Hitaveitugjöld skv. 4. gr. verða krafin mánaðarlega. Lesið verður af mælum að jafnaði einu sinni á ári, en notkun þess á milli áætluð. Heimilt er að fækka eða fjölga álestrum. Óski notandi þess að lesið sé af mæli hans utan reglubundins álestrartíma hitaveitunnar greiðist álestrargjald kr. 1.800.

7. gr.

Gjalddagi hitaveitugjalda er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Sé reikningur ekki greiddur við fyrstu sýningu ber gjaldanda að greiða hann þar sem hitaveitan ákveður. Það eru vanskil ef gjöldin eru ekki að fullu greidd á eindaga.

8. gr.

Heimæðargjöld hitaveitunnar til húshitunar skulu miðast við brúttórúmmál húss samkvæmt byggingarreglugerð og vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Heimæðargjöld í þéttbýli.

Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota.

Sverleiki pípu

Viðmiðunarstærð húsnæðis Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
20 mm allt að 1.200 m³ 298.500,00 331.335,00 370.140,00
25 mm 1.200 – 2.600 m³ 415.900,00 461.649,00 515.716,00
32 mm 2.600 – 4.000 m³ 625.300,00 694.083,00 775.372,00
40 mm 4.000 – 10.400 m³ 947.500,00 1.051.725,00 1.174.900,00
50 mm 10.400 – 21.000 m³ 1.471.200,00 1.633.032,00 1.824.288,00
65 mm   1.944.600,00 2.158.506,00 2.411.304,00

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.

Heimæðargjöld í dreifbýli.

Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota.

Sverleiki pípu

Viðmiðunarstærð húsnæðis Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
20 – 25 mm allt að 1.200 m³ 1.287.500,00 1.429.125,00 1.596.500,00

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.

Lengdargjald.

Lengdargjald í þéttbýli, greitt skal fyrir hvern metra umfram 25 metra innan lóðarmarka, kr./m 5.880.

Lengdargjald í dreifbýli, greitt er frá stofnlögn að tengistað heimtaugar að frádregnum 50 metrum, kr./m 5.880.

Nú eru fleiri en eitt hitakerfi í húsi með sérstökum mælum frá hitaveitunni og skal þá greiða kr. 31.963 í aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta.

Sé sameiginleg heimæð lögð í parhús þó þannig að lögnin sé klofin utan við útvegg og sérstök tengigrind komi í hvora íbúð skal greiða kr. 89.641 í aukagjald.

Ef um er að ræða atvinnuhúsnæði sem hitað er upp að hluta er heimilt að fella niður heimæðargjald af þeim hluta hússins sem ekki er hitaður. Verði breyting á starfsemi í slíku húsi þannig að farið verði að hita það allt upp þá er allt heimæðargjaldið gjaldfallið skv. gjaldskrá þess tíma sem breytingin á sér stað.

9. gr.

Heimæðargjald skal greitt samkvæmt gjaldskrá. Eigandi fær upplýsingar um heimæðargjald eftir að umsókn um heimæð hefur borist. Heimæðargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.

10. gr.

Hitaveitugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. Hitaveitunni er heimilt að breyta gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari í samræmi við breytingar á áðurnefndri vísitölu, enda sé breytingin staðfest af iðnaðarráðuneytinu hverju sinni.

11. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda.

12. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka fyrir aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Séu fleiri en einn notandi í húsi með sameiginlega heimtaug og hitakerfi skerðir það ekki rétt hitaveitunnar til að loka fyrir aðrennsli heita vatnsins ef einn þessara aðila vanrækir greiðslur þó reikningum sé skipt á notendur.

Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með a.m.k. þriggja daga fyrirvara innheimtugjald vegna vanskila notanda er kr. 2.800. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilum veldur kr. 4.920 í hvert sinn.

13. gr.

Einungis starfsmönnum hitaveitunnar er heimilt að breyta innsigluðum tengihlutum veitunnar. Eftirlitsmanni hitaveitunnar skal hvenær sem er heimill aðgangur að öllum mælum, hitagjöfum og vatnsæðum sem eru í sambandi við hitaveituna.

Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

14. gr.

Virðisaukaskattur leggst á gjöldin samkvæmt gildandi lögum og reglum hverju sinni.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af stjórn Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf. og sett samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, staðfestist hér með til að taka gildi 1. júlí 2016 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 52/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. júní 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 27. júní 2016