1. gr.
1. gr. samþykktarinnar orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Skipan bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er skipuð 11 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt kosningalögum.
2. gr.
1. mgr. 26. gr. samþykktarinnar orðast svo:
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn fimm fulltrúa í bæjarráð til eins árs og formann og varaformann ráðsins. Aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Hafi fulltrúi í bæjarráði verið kjörinn til setu í bæjarstjórn í óbundinni kosningu skal þó fara fram kjör á varamanni hans meðal aðal- og varamanna í bæjarstjórn.
3. gr.
1. tölul. A-liðar 46. gr. samþykktarinnar orðast svo:
1. Bæjarráð. Fimm aðalmenn úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn skv. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og formaður og varaformaður ráðsins. Aðal- og varamenn sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður verða sjálfkrafa varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Hafi kjörinn bæjarráðsmaður verið kjörinn bæjarfulltrúi í óbundinni kosningu skal varamaður hans kosinn úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn, sbr. 26. gr. samþykktar þessarar.
4. gr.
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur sett skv. 9. gr. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast gildi við bæjarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí 2022.
Innviðaráðuneytinu, 26. apríl 2022.
F. h. r.
Guðni Geir Einarsson.
|