1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/890 frá 27. maí 2019 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á jarðhnetum frá Gambíu og Súdan og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 669/2009 og framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 884/2014.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1249 frá 22. júlí 2019 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum sem eru ekki úr dýraríkinu.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1256 frá 23. júlí 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/943 um neyðarráðstafanir sem varða tímabundna stöðvun innflutnings á þurrkuðum baunum frá Nígeríu, að því er varðar framlengingu á gildistíma.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1249 og framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2019/1256 sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa. Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/890 er birt sem fylgiskjal við reglugerð nr. 790/2019 um (3.) breytingu á reglugerð nr. 808/2014 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli eða 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. september 2019.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|