Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 32/2024

Nr. 32/2024 9. apríl 2024

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu starfa ráðherra.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

 

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti er störfum þannig skipt með ráðherrum:

 

1. gr.

Forsætisráðherra.

Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætis­ráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið forsætisráðherra.

 

2. gr.

Dómsmálaráðherra.

Guðrún Hafsteinsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið dómsmálaráðherra.

 

3. gr.

Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og vinnumark­aðs­ráðuneyti skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðu­neyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið félags- og vinnumarkaðsráðherra.

 

4. gr.

Fjármála- og efnahagsráðherra.

Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahags­ráðuneytið skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.

 

5. gr.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið háskóla-, iðnaðar- og nýsköp­unar­ráðherra.

 

6. gr.

Heilbrigðisráðherra.

Willum Þór Þórsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið heilbrigðisráðherra.

 

7. gr.

Innviðaráðherra.

Svandís Svavarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið innviðaráðherra.

 

8. gr.

Matvælaráðherra.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir matvæla­ráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið matvælaráðherra.

 

9. gr.

Menningar- og viðskiptaráðherra.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir menningar- og viðskipta­ráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið menningar- og viðskiptaráðherra.

 

10. gr.

Mennta- og barnamálaráðherra.

Ásmundur Einar Daðason fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og barna­mála­ráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.

 

11. gr.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Guðlaugur Þór Þórðarson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytið skv. 11. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðu­neyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

 

12. gr.

Utanríkisráðherra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkis­ráðuneytið skv. 12. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið utanríkisráðherra.

 

13. gr.

Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 7 frá 31. janúar 2022 um skiptingu starfa ráðherra.

 

Gjört á Bessastöðum, 9. apríl 2024.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 9. apríl 2024