Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 310/2015

Nr. 310/2015 18. mars 2015
SAMÞYKKT
um afgreiðslur byggingarnefndar Tálknafjarðarhrepps.

1. gr.

Á grundvelli heimildar í 1. mgr. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 hefur hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps ákveðið að í sveitarfélaginu starfi byggingarnefnd. Byggingar-, skipu­lags- og umhverfisnefnd Tálknafjarðarhrepps fer með verkefni byggingarnefndar.

2. gr.

Byggingarfulltrúi fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.

Útgáfa byggingarleyfa af hálfu byggingarfulltrúa vegna allrar mannvirkjagerðar er háð því skilyrði að byggingar-, skipulags- og umhverfisnefnd fjalli um og samþykki byggingar­leyfis­umsókn.

3. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga nr. 123/2010, stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og sam­þykkt nr. 1280/2013 um stjórn Tálknafjarðarhrepps, eftir því sem við á.

4. gr.

Samþykkt þessi, sem hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu 18. mars 2015.

F. h. r.

Vigdís Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 1. apríl 2015