Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 307/2017

Nr. 307/2017 8. mars 2017

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:

  1.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/381 frá 3. mars 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrar­einingum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.6.
  2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/374 frá 3. mars 2017 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.6.
  7.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/2315 frá 19. desember 2016 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.6.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 8. mars 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Helga Hauksdóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 7. apríl 2017