Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1241/2015

Nr. 1241/2015 18. desember 2015

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Dalvíkur.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir frá og með 1. janúar 2016 fyrir orkuveitusvæði Hitaveitu Dalvíkur. Öll verð í gjaldskránni eru án virðisaukaskatts og orkuskatts.

2. gr.

Viðmiðunarhitastig skv. gjaldskránni er 25°C.

Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:

  a) Orkugjald skv. orkumæli kr. 2,44  pr. kWst
  b) Orkugjald skv. orkumæli sundlaugar kr. 0,98  pr. kWst
  c) Lokunargjald kr. 6.974  

Þeim viðskiptavinum Hitaveitu Dalvíkur sem nota meira 1.006.000 kWst á ári er veittur 30% afsláttur af gjöldum í gjaldskránni.

3. gr.

Viðskiptavinir skulu greiða fast gjald í formi mælaleigu, gjaldið er daggjald og er breytilegt eftir stærð mæla. Mælaleigan er sem hér segir:

Stærð mælis Mælagjald í kr. á dag
15 mm   33,38
20 mm   44,73
25 mm   66,61
40 mm   83,59
50 mm 104,64
65 mm 117,86
80 mm 133,01
100 mm 150,11

4. gr.

Heimæðagjald Hitaveitu Dalvíkur skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

  Fyrir hús allt að 400 m³ að utanmáli og heimæð allt að 50 m kr. 318.673
  og á m³ þar yfir kr. 400,86
  og á m fram yfir 50 m kr. 6.974

Rúmmál húsa miðast við stærðir samkvæmt reglum um skráningu fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands. Heimæðagjöld skal reikna af öllu húsrými á viðkomandi lóð, hvort sem það verður tengt hitaveitunni eða ekki.

Heimæðagjald hitaveitu fyrir útihús tengd landbúnaði skal vera með eftirfarandi hætti:

  a. Mjólkurhús/fjós greiðir lágmarksgjald kr. 318.673
  b. Fyrir hesthús að 700 m³ skal greiða lágmarksgjald. Aðilum er heimilt að sameinast um inntak.    

Ef um er að ræða lagnir í dreifða byggð eða samkvæmt sérsamningi er vísað til 19. gr. reglugerðar fyrir Hitaveitu Dalvíkur. Gjald þetta skal þó aldrei vera lægra en nemur lágmarksheimæðagjaldi hitaveitunnar.

5. gr.

Heimæðagjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2015, 128,0 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

6. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með 10 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni kr. 6.404.

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá fyrir Hitaveitu Dalvíkur nr. 195, 9. febrúar 2015 með áorðnum breytingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. desember 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2015