1. gr. 6. gr. verður svohljóðandi: Stjórn jöfnunarkerfis ákveður starfrækslutíma kerfisins í samráði við Seðlabanka Íslands. Uppgjör í jöfnunarkerfi á bankadögum skal eigi fara fram síðar en við lokun stórgreiðslukerfis Seðlabankans. Heimilt er að láta fara fram fleiri en eitt uppgjör á dag í jöfnunarkerfum að fengnu samþykki Seðlabanka Íslands. 2. gr. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 38. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands og öðlast gildi 25. maí 2010. Reykjavík, 30. mars 2010. | Seðlabanki Íslands, | | Már Guðmundsson seðlabankastjóri. | Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri. |
|