Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1628/2021

Nr. 1628/2021 20. desember 2021

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 760/2021, um styrki vegna hjálpartækja.

1. gr.

4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að veita styrki vegna tveggja hjálpartækja af sömu gerð til barna sem eiga fasta búsetu á tveimur stöðum, heimildin nær til hjálpartækja við salernisferðir, sjúkra­rúma, dýna, stuðningsbúnaðar auk sérstakra stóla og vinnustóla fyrir börn.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 20. desember 2021.

 

Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.

Guðlaug Einarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2021