Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1440/2023

Nr. 1440/2023 7. desember 2023

REGLUR
varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2023 til 29. september 2023.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

 

2. gr.

Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upp­lýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/967 frá 16. maí 2023 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagna­skila með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2023 til 29. júní 2023 í samræmi við til­skipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygg­inga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 182/2023 frá 5. júlí 2023.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1672 frá 30. ágúst 2023 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagna­skila með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2023 til 29. september 2023 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 281/2023 frá 27. október 2023.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union):

OJ, deild L, nr. 133, þann 17. maí 2023, bls. 125-213;
OJ, deild L, nr. 214, þann 31. ágúst 2023, bls. 95-176.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016, um vátrygginga­starfsemi, öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 7. desember 2023.

 

  Ásgeir Jónsson Rannveig Júníusdóttir
  seðlabankastjóri. framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 21. desember 2023