Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1012/2019

Nr. 1012/2019 8. nóvember 2019

AUGLÝSING
um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum.

1. gr. 

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna:  

Reykjavíkurprófastsdæmi eystra:
Breiðholts-, Fella- og Hólaprestaköll sameinist í eitt prestakall, Breiðholtsprestakall.

Vesturlandsprófastsdæmi:
Heiti Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalls breytist í Garða- og Saurbæjarprestakall.

Vestfjarðaprófastsdæmi:
Súðavíkursókn, Vatnsfjarðarsókn og Ögursókn í Bolungarvíkurprestakalli sameinist. Heiti hinnar nýju sóknar verði Súðavíkursókn.
Flateyjarsókn í Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli tilheyri Stykkishólmsprestakalli í Vestur­lands­prófastsdæmi.
Skarðssókn í Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli tilheyri Dalaprestakalli í Vesturlands­prófastsdæmi.

2. gr. 

Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. 

Reykjavík, 8. nóvember 2019.

Drífa Hjartardóttir forseti kirkjuþings.


B deild - Útgáfud.: 22. nóvember 2019