Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1081/2021

Nr. 1081/2021 22. september 2021

REGLUR
um afmörkun á kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um greiningu og afmörkun á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármála­fyrirtæki, nr. 161/2002, sem kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.

 

2. gr.

Aðferðafræði við að greina og afmarka kerfislega
mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.

Um greiningu og afmörkun Seðlabanka Íslands á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á alþjóðavísu og röðun þeirra í flokka eftir kerfislegu mikilvægi fer eftir framseldri reglugerð fram­kvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1222/2014, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1222/2014 frá 8. október 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til nánari útskýringar á aðferðafræðinni við að greina kerfislega mikilvægar stofnanir á alþjóðavísu og til skilgreiningar á undirflokkum kerfislega mikilvægra stofnana á alþjóðavísu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 72-81.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1608 frá 17. maí 2016 um breyt­ingar á framseldri reglugerð (ESB) nr. 1222/2014 að því er varðar tæknilega eftirlits­staðla til nánari útskýringar á aðferðafræðinni við að greina kerfislega mikilvægar stofnanir á alþjóða­vísu og til skilgreiningar á undirflokkum kerfislegra stofnana á alþjóðavísu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 106-108.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í i-lið 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 22. september 2021.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2021