Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 191/2021

Nr. 191/2021 23. febrúar 2021

REGLUGERÐ
um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að feng­inni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi frá og með 24. febrúar 2021 og gildir til og með 30. apríl 2021.

Um fjöldatakmörkun í skólastarfi á hverju skólastigi fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, fram­halds­fræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til annarrar starfsemi, svo sem skólabókasafna, frístundaheimila og félags­miðstöðva, skólabúða, sem og til æskulýðs- og tómstundastarfs.

Heimilt er á öllum skólastigum að taka við allt að 200 einstaklingum fæddum 2004 og fyrr á skipulögðum viðburði séu öll skilyrði 4. mgr. 3. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar uppfyllt.

Um íþróttastarf fer samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Um verklegt ökunám og flugnám fer eftir reglugerð um takmörkun á samkomum vegna far­sóttar.

 

3. gr.

Leikskólar.

Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 1 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks innan dyra skal það nota andlitsgrímur. Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn. Ekki skulu vera fleiri en 50 full­orðnir einstak­lingar í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.Nálægðar­tak­mörkun tekur ekki til barna á leikskólaaldri.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi leikskóla, svo sem leiksýningar og tónleikar, eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.

Skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er heimilt.

 

4. gr.

Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal það nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfs­menn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Nemendur í 1.–10. bekk eru undanþegnir 1 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 150 nemendur í hverju rými innan dyra. Blöndun nemenda milli hópa er heimil.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, sem og í mötuneytum og skólaakstri, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Ákvæði þessarar greinar eiga einnig við um frístundaheimili, skólabúðir, skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri, sem og starfsemi í félagsmiðstöðvum.

 

5. gr.

Tónlistarskólar.

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 1 metra nálægðartakmörkun hver gagnvart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir skv. 3. og 4. gr. Um eldri nemendur fer skv. 6. gr.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi tónlistarskóla, svo sem tónleikar, eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

 

6. gr.

Framhaldsskólar.

Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskóla, ungmennahúsum og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfs­fólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfs­manna fari aldrei yfir 150 í hverju rými.

Sé ekki unnt að halda 1 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlits­grímur. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum sem og í mötuneytum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur.

Blöndun nemenda milli hópa er heimil í kennslu. Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi framhaldsskóla, svo sem fyrirlestrar, ræðukeppnir o.fl., eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir eftir hverja við­veru nemenda­hópa. Jafnframt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

 

7. gr.

Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverju kennslu- eða lesrými fari ekki yfir 150. Blöndun nemenda og kennara milli hópa er heimil. Sé ekki unnt að halda 1 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlits­grímur. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfs­menn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðar­takmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, er skólastarf heimilt að gættum sóttvörnum og með því skilyrði að nemendur og kennarar noti andlitsgrímu.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi í háskóla eru heimilir í skólabyggingum að uppfylltum skilyrðum 4. mgr. 3. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir milli nemendahópa.

Í háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarna­lækni og ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál um beiðni um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1306/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 23. febrúar 2021.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. febrúar 2021