Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1151/2014

Nr. 1151/2014 19. desember 2014
REGLUGERÐ
um umdæmi sýslumanna.

1. gr.

Landinu er skipt í níu umdæmi sýslumanna. Eiga sveitarfélög undir hvert þeirra, sem hér segir:

  1. Umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu:
    Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Hafnarfjarðar­kaupstaður, Garðabær og Kópavogsbær.
    Aðalskrifstofa: Höfuðborgarsvæðið.
    Sýsluskrifstofur og önnur útibú: Samkvæmt ákvörðun ráðherra hverju sinni eftir tillögu sýslumanns.

  2. Umdæmi sýslumannsins á Vesturlandi:
    Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Snæfells­bær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkis­hólms­bær og Dalabyggð.
    Aðalskrifstofa: Stykkishólmur.
    Sýsluskrifstofur: Akranes, Borgarnes.
    Önnur útibú: Ólafsvík, Búðardalur.

  3. Umdæmi sýslumannsins á Vestfjörðum:
    Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Stranda­byggð.
    Aðalskrifstofa: Patreksfjörður.
    Sýsluskrifstofa: Ísafjörður.
    Önnur útibú: Bolungarvík, Hólmavík.

  4. Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra:
    Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.
    Aðalskrifstofa: Blönduós.
    Sýsluskrifstofa: Sauðárkrókur.

  5. Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi eystra:
    Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaða­hreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanes­byggð.
    Aðalskrifstofa: Húsavík.
    Sýsluskrifstofur: Akureyri, Siglufjörður.
    Annað útibú: Dalvík.

  6. Umdæmi sýslumannsins á Austurlandi:
    Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur.
    Aðalskrifstofa: Seyðisfjörður.
    Sýsluskrifstofur: Egilsstaðir, Eskifjörður.
    Annað útibú: Vopnafjörður.

  7. Umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi:
    Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafn­ings­hreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus.
    Aðalskrifstofa: Selfoss.
    Sýsluskrifstofa: Höfn.
    Önnur útibú: Hvolsvöllur, Vík.

  8. Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum:
    Vestmannaeyjabær.
    Aðalskrifstofa: Vestmannaeyjabær.

  9. Umdæmi sýslumannsins á Suðurnesjum:
    Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær og Sveitar­félagið Vogar.
    Aðalskrifstofa: Reykjanesbær.
    Annað útibú: Grindavík.

2. gr.

Ef mörk milli umdæma sýslumanna eru óskýr, svo sem á hálendinu, ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar.

Á sama hátt ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar ef það getur af ein­hverjum ástæðum átt undir fleiri en einn sýslumann.

3. gr.

Á aðalskrifstofu sýslumanns og öðrum sýsluskrifstofum er veitt öll sú þjónusta sem sýslumönnum ber að veita samkvæmt lögum, reglugerðum og öðrum stjórnvalds­fyrirmælum.

Í útibúum er veitt þjónusta á tilteknum tímum eftir því sem sýslumaður ákveður.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. og 9. gr. laga nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, öðlast gildi 1. janúar 2015. Fellur þá úr gildi reglugerð nr. 66/2007 um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lög­reglu­stjóra, með áorðnum breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 19. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2014